Misty Mountain Cardigan |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Puna með röndum, hekluð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 173-38 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allar umf með st = rétta. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð. HEKLLEIÐBEININGAR: Þegar þú heklar fram og til baka: Hver umf með st byrjar með 3 ll (koma ekki í stað fyrsta st). Hver umf með fl byrjar með 1 ll (koma ekki í stað fyrstu fl). Í lok hverrar umf með st/fl er heklað þannig: Áður en þráðurinn er dreginn í gegn í lokin á síðasta st/fl er skipt um lit þannig: Takið næsta lit, þ.e.a.s. 2 umf niður (1 st umf og 1 fl umf), með nýja litnum er hekluð 1 kl um umf sem var hekluð (þ.e.a.s. um síðasta st/fl), 4 ll, dragið síðan þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna á heklunálinni. Þetta er gert til að þráðurinn dragi ekki stykkið saman. Þegar þú heklar í hring: Hver umf með fl byrjar með 1 ll (kemur í stað fyrstu fl) og endar með 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf. Hver umf með st byrjar með 3 ll (kemur í stað fyrsta st) og endar með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. RENDUR: RÖND 1: 1 umf með natur. RÖND 2: 1 umf með ljós grár. RÖND 3: 1 umf með grábrúnn. ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki): Passið uppá að næsta umf sé 1 umf með st. Heklið eins og áður þar til 1 ll er eftir á undan prjónamerki, * heklið 1 st um næstu ll, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st til viðbótar í sömu ll, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni (= 1 st færri) *, endurtakið frá *-* um næstu ll (þ.e.a.s. hinum megin við prjónamerki) = 2 st færri við hvort prjónamerki (= alls 4 st). Í hvert skipti sem l er fækkað, endurtakið A.1b alls 2 sinnum færra á breiddina. ÚTAUKNING: Passið uppá að næsta umf sé 1 umf með st. Heklið eins og áður þar til 1 ll er eftir á undan prjónamerki, heklið 3 st um næstu ll *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum = 2 st fleiri við prjónamerki, endurtakið við bæði prjónamerki (= alls 4 st fleiri). Í hvert skipti sem auka á út, endurtakið A.1b alls 2 sinnum oftar á breiddina. ÚRTAKA-1 (á við um ermi): Passið uppá að næsta umf sé 1 umf með st. * Heklið 1 st um fyrstu/næstu ll í umf, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st til viðbótar um sömu ll, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni (= 1 st færri) *, endurtakið frá *-* um næstu ll = 2 st færri. Í hvert skipti sem l er fækkað, endurtakið A.1b alls 1 sinni færra á breiddina. Fækkið l til skiptis í byrjun og í lok umf (þ.e.a.s. þegar fækka á l í lokin er heklað eins og áður þar til 2 ll eru eftir í umf). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður, fram og til baka. Kantur að framan er heklaður í lokin. BERUSTYKKI: Heklið 100-103-107-114-117-124 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) með heklunál nr 4,5 með litnum grábrúnn. Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, 1 st í hverja af næstu 5-1-5-5-1-1 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* = 84-86-90-96-98-104 st. Heklið umf 2 í mynstri þannig (= frá röngu með fl/ll) í RENDUR – sjá útskýringu að ofan: Heklið A.1c yfir næstu 2 st, A.1b yfir næstu 8-8-10-10-10-12 st (= 4-4-5-5-5-6 sinnum á breidd), A.2 yfir næstu 8 st (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 6-6-6-8-8-8 st (= 3-3-3-4-4-4 sinnum á breidd), A.2 yfir næstu 8 st (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 20-22-22-24-26-28 st (= 10-11-11-12-13-14 sinnum á breidd), A.2 yfir næstu 8 st (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 6-6-6-8-8-8 st (= 3-3-3-4-4-4 sinnum á breidd), A.2 yfir næstu 8 st (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 8-8-10-10-10-12 st (= 4-4-5-5-5-6 sinnum á breidd), endið með A.1a yfir síðustu 2 st. Endurtakið A.1a til A.1c á hæðina og aukið út eins og útskýrt er í A.2 JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir þannig: Heklið umf 3 í mynstri JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir þannig (= frá réttu): Heklið A.1a yfir fyrstu 2 l, A.1b yfir næstu 8-8-10-10-10-12 l og aukið út um 0-2-2-4-4-4 st jafnt yfir, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 6-6-6-8-8-8 l og aukið út um 0-4-4-4-4-4 st jafnt yfir, A.2 eins og áður, A.1b yfir næstu 20-22-22-24-26-28 l og aukið út um 0-4-4-6-6-8 st jafnt yfir, A.2 eins og áður, A.1b yfir næstu 6-6-6-8-8-8 l og aukið út um 0-4-4-4-4-4 st jafnt yfir, A.2 eins og áður, A.1b yfir næstu 8-8-10-10-10-12 l og aukið út um 0-2-2-4-4-4 st jafnt yfir, endið með A.1c yfir síðustu 2 l = 100-118-122-134-136-144 st (meðtalin útaukning í A.2). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið umf 4 í mynstri þannig (= frá röngu): Heklið A.1c yfir fyrstu 2 st, A.1b yfir næstu 8-10-12-14-14-16 st, A.2 eins og áður, A.1b yfir næstu 6-10-10-12-12-12 st, A.2 eins og áður, A.1b yfir næstu 20-26-26-30-32-36 st, A.2 eins og áður, A.1b yfir næstu 6-10-10-12-12-12 st, A.2 eins og áður, A.1b yfir næstu 8-10-12-14-14-16 st, endið með A.1a yfir síðustu 2 st. Heklið umf 5 í mynstri JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir þannig (= frá réttu): Heklið A.1a yfir fyrstu 2 l, A.1b yfir næstu 8-10-12-14-14-16 l og aukið út um 0-0-0-0-2-4 st jafnt yfir, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breiddina), A.1b yfir næstu 6-10-10-12-12-12 l og aukið út um 0-2-4-4-0-0 st jafnt yfir, A.2 eins og áður, A.1b yfir næstu 20-26-26-30-32-36 l og aukið út um 0-0-2-4-4-8 st jafnt yfir, A.2 eins og áður, A.1b yfir næstu 6-10-10-12-12-12 l og aukið út um 0-2-4-4-0-0 st jafnt yfir, A.2 eins og áður, A.1b yfir næstu 8-10-12-14-14-16 l og aukið út um 0-0-0-0-2-4 st yfir síðustu 2 l = 116-138-148-162-160-176 st (meðtalin útaukning í A.2). Haldið áfram með mynstur og útaukningu í A.2. Þegar síðasta umf er eftir í A.2 mælist stykkið ca 18-18-19-19-21-21 cm frá kanti í hálsi (= 212-234-260-274-304-320 st). Heklið síðustu umf í A.2 frá röngu þannig: Heklið A.1c yfir fyrstu 2 st, A.1b yfir næstu 8-10-12-14-16-20 st, A.2 yfir næstu 20-20-22-22-26-26 st (= 1 sinni á breidd), 8-8-8-10-10-12 ll, hoppið yfir næstu 46-52-58-60-64-64 st (þ.e.a.s. 20-20-22-22-26-26 st A.2, 6-12-14-16-12-12 st A.1b og 20-20-22-22-26-26 st A.2 fyrir ermi), A.2 yfir næstu 20-20-22-22-26-26 st (= 1 sinni á breidd), A.1b yfir næstu 20-26-28-34-36-44 st, A.2 yfir næstu 20-20-22-22-26-26 st (= 1 sinni á breidd), 8-8-8-10-10-12 ll, hoppið yfir næstu 46-52-58-60-64-64 st (þ.e.a.s. 20-20-22-22-26-26 st A.2, 6-12-14-16-12-12 st A.1b og 20-20-22-22-26-26 st A.2 fyrir ermi), A.2 yfir næstu 20-20-22-22-26-26 st (= 1 sinni á breidd), A.1b yfir næstu 8-10-12-14-16-20 st, endið með A.1a yfir síðustu 2 st = 137-147-161-175-197-217 l. Stykkið er nú heklað áfram með litnum ljós grár. Næsta umf er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 2 l, A.1b yfir næstu 28-30-34-36-42-46 l, 1 st í hverja og eina af 8-8-8-10-10-12 ll undir ermi, setjið 1 prjónamerki í þessa l, A.1b yfir næstu 60-66-72-78-88-96 l, 1 st í hverja og eina af 8-8-8-10-10-12 ll undir ermi, setjið 1 prjónamerki í þessa l, A.1b yfir næstu 28-30-34-36-42-46 l, endið með A.1c yfir síðustu 3 l. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Næsta umf er hekluð frá röngu þannig: Heklið A.1c yfir fyrstu 2 st eins og áður, endurtakið A.1b yfir næstu 132-142-156-170-192-212 st, endið með A.1a yfir síðustu 2 st. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 4 cm frá prjónamerki er fækkað um 2 st við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Fækkið l svona með 4-4-4½-4½-5½ cm millibili alls 3 sinnum = 124-134-148-162-184-204 st. Þegar stykkið mælist 14-16-16-17-17-19 cm frá prjónamerki, aukið út um 2 st við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING! Aukið svona út með 2½ cm millibili alls 6 sinnum = 148-158-172-186-208-228 st. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 35-37-37-38-38-40 cm frá prjónamerki (= 54-56-58-59-61-63 cm frá kanti í hálsi), passið að endað sé með umferð með st. Klippið frá og festið enda. ERMI: = 46-52-58-60-64-64 st. Fyrsta umf á ermi er hekluð með sama lit og síðasta röndin í fl á fram- og bakstykki. Ermin er hekluð í hring, ofan frá og niður. Byrjið að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 fl í 5.-5.-5.-5.-5.-6. ll af þeim 8-8-8-10-10-12 ll sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki, heklið 1 ll (= 1 fl), heklið 1 fl í hverja af næstu 3-3-3-5-5-6 ll, A.1b (þ.e.a.s. 1 umf með fl og ll) yfir 46-52-58-60-64-64 st yfir ermi, endið með 1 fl í hverja af þeim 4-4-4-4-4-5 ll sem eftir eru undir ermi = 54-60-66-70-74-76 l. Stykkið er nú heklað áfram með litnum ljós grár. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið A.1b hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá prjónamerki er fækkað um 2 st undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA-1. Fækkið l svona með 3- 2½-2-2-2-2 cm millibili alls 11-13-15-17-18-18 sinnum = 32-34-36-36-38-40 l. Þegar stykkið mælist 42-44-43-45-45-47 cm frá prjónamerki, stillið af að endað sé með 1 umf með st. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina alveg eins. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Byrjið neðst niðri á peysu frá röngu. Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið með litnum ljós grár þannig: Heklið 1 kl um fyrsta st, 1 fl, * 2 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl um næsta st *, endurtakið frá *-* jafnt yfir upp yfir kant á peysu, passið uppá að endað sé með 1 fl í síðasta st í hálsi. Í næstu umf eru heklaðir 2 st um hvern ll-boga. Heklið síðan A.1a yfir fyrstu 2 st, endurtakið A.1b þar til 2 st eru eftir, endið með A.1c yfir síðustu 2 st. Heklið alls 3 umf af A.1 (= síðasta umf er umf með fl og ll). Klippið frá og festið enda. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Heklið eins og sá vinstri, nema nú er heklað efst uppi á peysunni niður meðfram kanti á peysu frá röngu. KANTUR Í HÁLSI: Heklið með litnum ljós grár frá réttu þannig: Byrjið að hekla 1 kl í fyrsta st í kant að framan, 1 ll (= 1 fl), heklið 1 fl um sama st, 2 fl um hvern af næstu st á kanti að framan, 1 fl í hverja ll sem st var heklaður í fyrstu umf (= 84-88-88-96-100-104 fl), endið með 2 fl um hvern st yfir kant að framan. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. Fyrsta talan er saumuð ca 2 cm frá kanti í hálsi, síðan eru hinar saumaðar með ca 8 cm millibili. Tölunum er hneppt á milli 2 st í hægri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (43)
Amalie wrote:
Jeg har d. 24/3-2019 stillet et spørgsmål, som jeg desværre endnu ikke har fået svar på, håber snart at jeg får et svar.
01.04.2019 - 09:53DROPS Design answered:
Hei Amalie. Beklager sent svar, men se svar under.
02.04.2019 - 13:25Amalie wrote:
Hej Drops 😊 jeg er lige blevet færdig med diagrammet og skal til at tage ud til ærmer. Jeg har dog det problem, at jeg er ved at hækle str. XL, og ifølge opskriften skal stykket, som jeg har hæklet, være ca. 19 cm, jeg har dog kun ca. 17 cm 😔 jeg vil derfor spørge om man godt kan hækle et par cm mere på, dog uden at jeg tager ud, eller vil dette ikke komme til at fungere? 😉 Mvh Amalie 😊
27.03.2019 - 09:36DROPS Design answered:
Hei Amalie. Se svar under :)
02.04.2019 - 13:25Amalie wrote:
Hej Drops 😊 jeg ved lige blevet færdig med diagrammet og skal til at tage ud til ærmer. Jeg har dog det problem, at jeg er ved at hækle str. XL, og ifølge opskriften skal stykket, som jeg har hæklet, være ca. 19 cm, jeg har dog kun ca. 17 cm 😔 jeg vil derfor spørge om man godt kan hækle et par cm mere på, dog uden at jeg tager ud, eller vil dette ikke komme til at fungere? 😉 Mvh Amalie 😊
24.03.2019 - 14:48DROPS Design answered:
Hei Amalie. Ja, det kan gjerne hekle et par cm uten økning for å få den korrekte lengden på bærestykket. God fornøyelse
02.04.2019 - 09:21Judith Opitz wrote:
Hallo, die Jacke sieht wunderschön aus, weshalb ich mich nun daran gemacht habe, sie zu häkeln. Könnten sie bitte Angaben zu der Maschenanzahl in den Reihen 8,10,12,14,16 usw. (Feste M. und LM im Wechsel) machen ? In Größe M soll man ja am Schluss 234 Maschen haben-aber ich komme mit den Zunahmen nicht klar. Laut Anleitung hätte ich nach Reihe 12 schon über 300 Maschen. Grüße, Judith
09.12.2018 - 15:12DROPS Design answered:
Liebe Frau Opitz, nach 5. Reihe haben Sie 138 M; dann wird es nur in A.2 (wie im Diagram gezeigt) zugenommen - diese Zunahmen entstehen mit den Stb-Reihen - die Reihen mit Feste M. und Lm im Wechsel häkeln sie wie am Anfang A.2. Viel Spaß beim häkeln!
10.12.2018 - 09:41Vic wrote:
Bonjour, Si j'ai bien compris les explications que vous donnez à Béatrice à propos du changement de couleur, on obtient en fin de rang, une hauteur de ml d'une autre couleur. N'est-ce pas gênant au montage et est-ce qu'on parvient à le dissimuler totalement ? Merci pour la réponse.
08.12.2018 - 11:59DROPS Design answered:
Bonjour Vic, ce changement de couleur ne se verra pas, car on va crocheter les bordures le long des devants. Pour les manches, veillez à ce que le changement de couleur reste bien sur l'envers. Bon crochet!
10.12.2018 - 08:44Vic wrote:
Bonjour, J'ai un problème dés le début ! à savoir que je n'ai pas le même rapport mailles/rangs: quand je fais un échantillon avec un crochet n°5, j'obtiens 14 m pour 8.5 rgs et si je prends un crochet n°4.5 comme préconisé, j'obtiens 15/16 m mais 9 rgs au lieu des 8. Du coup, je ne sais pas trop que faire. Merci pour vous suggestions.
02.12.2018 - 11:39DROPS Design answered:
Bonjour Vic, nous n'avons pas toute la même façon de crocheter, il semble que le crochet 4,5 convient le mieux en largeur, pour que la hauteur convienne également, essayez de tirer les mailles un peu plus en hauteur pour que les 8 rangs fassent bien 10 cm - et pensez à toujours bien conserver vos 16 m = 10 cm. Pensez également à laver votre échantillon terminé, laissez-le sécher bien à plat et vérifiez ensuite vos mesures. Bon crochet!
03.12.2018 - 09:36Beatrice wrote:
À la fin de chaque rang de B/ms crocheter ainsi: changer de couleur avant le dernier jeté de la dernière B/ms ainsi: attraper la couleur suivante qui se trouve 2 rangs (= 1 rang de B et 1 rang de ms) plus bas, et avec cette couleur, faire 1 mc autour de ce rang (c'est-à-dire autour la dernière B/ms), 4 ml, écouler le dernier jeté de la dernière m. On procède ainsi pour éviter que les fils ne soient trop serrés sur le côté. Bonsoir je me comprend pas très bien cette phrase
19.06.2018 - 22:34DROPS Design answered:
Bonjour Béatrice, on change de couleur lorsque l'on fait la dernière maille du rang, au moment de faire le dernier jeté de la bride ou de la ms (la dernière fois que l'on écoule les boucles ensemble), on le fait avec le fil de la couleur suivante de la rayure (pas avec celle du rang que l'on termine) dont le fil est 2 rangs plus bas: quand il reste les 2 dernières boucles sur le crochet, on prend le fil 2 rangs plus bas, on fait 1 mc autour de ce rang, puis 4 ml (pour avoir la bonne hauteur et terminer la m sur le crochet), 1 jeté, et on écoule les 2 dernières boucles sur le crochet. Bon crochet!
20.06.2018 - 08:17Beatrice wrote:
Commencer tous les rangs de B par 3 ml (ne remplacent pas la 1ère B).\r\nJe me comprend pas cette phrase
18.06.2018 - 18:27DROPS Design answered:
Bonjour Béatrice, au début d'un nouveau rang quand vous venez juste de tourner, crochetez 3 mailles en l'air, puis 1 bride dans la 1ère bride (= la dernière du rang précédent), ces 3 ml servent à commencer avec la bonne hauteur pour la 1ère bride mais ne comptent pas comme étant la 1ère bride du rang. Bon crochet!
19.06.2018 - 08:05Chris wrote:
Ik ben net begonnen met het patroon en heb nu 5 rijen gehaakt.\r\nHet is de eerste keer dat ik met zo een telpatroon werk, het is dus effen zoeken.\r\nMoet ik vanaf rij 6 nog de A1 patronen volgen (dus herhalen) of enkel A2 verder volgen?
16.06.2018 - 19:35Olivia wrote:
Hej Jeg er forvirret over, hvor jeg skal sætte mærketrådene, i midten af de 8 stangmasker under ærmerne eller efter de 8 stangmasker? På forhånd tak
29.05.2018 - 20:55DROPS Design answered:
Hej Olivia, mærket sætter du imellem de 8 masker under ærmet, det skal markere midten af hver side. God fornøjelse!
30.05.2018 - 12:29