Goldfinch |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður kjóll úr DROPS Cotton Merino. Stærð S - XXXL.
DROPS Extra 0-1284 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll, umf endar með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kjóllinn er heklaður í tveimur hlutum. Efri hlutinn er heklaður fram og til baka í eitt stykki, frá miðju að framan að miðju að framan, síðan er neðra stykkið heklað í hring og niður frá neðri kanti á efra stykki. EFRA STYKKI: Heklið 48-48-55-62-69-69 ll með heklunál nr 3,5 með Cotton Merino. Snúið við og heklið 1 st í fjórðu ll frá heklunálinni (= 2 st), heklið 1 st í hvora af næstu 2 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 st í hvern af næstu 6 st *, endurtakið frá *-* = 40-40-46-52-58-58 st. Heklið 2 umf með 1 st í hvern st (= kantur að framan), heklið síðan þannig – frá réttu: A.1 (= 2 st), A.2 yfir næstu 36-36-42-48-54-54 st, endið með A.3 (= 2 st). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 9-8-11-12-11-14 cm – passið að næsta umf sé umf með st sem hekluð er frá röngu – fitjið upp 24 nýjar, lausar ll í lok umf fyrir öxl = 64-64-70-76-82-82 st/ll. Næsta umf er hekluð frá röngu- þannig: A.3, A.2 yfir næstu 60-60-66-72-78-78 st, endið með A.1. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 19-20-21-23-24-25 cm – passið að næsta umf sé umf með st sem hekluð er frá réttu. Heklið nú þannig: Heklið A.1, heklið A.2 yfir næstu 30-30-30-36-36-36 st, heklið A.3, snúið við og heklið til baka (ekki er heklað yfir síðustu 30-30-36-36-42-42 st í umf = handvegur). Þegar stykkið mælist 25-28-31-35-40-45 cm – passið að næsta umf sé umf með st sem hekluð er frá röngu – fitjið upp 30-30-36-36-42-42 nýjar, lausar ll í lok umf fyrir öxl = 64-64-70-76-82-82 st/ll. Næsta umf er hekluð frá röngu – þannig: A.3, A.2 yfir næstu 60-60-66-72-78-78 st, endið með A.1. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 36-40-43-48-53-59 cm – passið að næsta umf sé umf með st sem hekluð er frá réttu. Heklið þannig: Heklið A.1, heklið A.2 yfir næstu 56-56-60-66-72-72 st, heklið A.3, snúið við og heklið til baka (ekki er heklað yfir síðustu 6 st í umf = hálsmál). Þegar stykkið mælist 48-52-57-63-70-76 cm – passið að næsta umf sé umf með st sem hekluð er frá röngu – fitjið upp 6 nýjar lausar ll í lok umf fyrir öxl = 64-64-70-76-82-82 st/ll. Næsta umf er hekluð frá röngu – þannig: A.3, A.2 yfir næstu 60-60-66-72-78-78 st, endið með A.1. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 59-64-69-76-83-90 cm – passið að næsta umf sé umf með st sem hekluð er frá réttu. Heklið nú þannig: Heklið A.1, heklið A.2 yfir næstu 30-30-30-36-36-36 st, heklið A.3, snúið við og heklið til baka (ekki er heklað yfir síðustu 30-30-36-36-42-42 st í umf = handvegur). Þegar stykkið mælist 65-72-79-88-99-110 cm – passið að næsta umf sé umf með st sem hekluð er frá röngu, fitjið upp 30-30-36-36-42-42 nýjar lausar ll í lok umf fyrir öxl = 64-64-70-76-82-82 st. Næsta umf er hekluð frá röngu – þannig: A.3, A.2 yfir næstu 60-60-66-72-78-78 st, endið umf með A.1. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 75-84-89-99-112-121 cm – passið að næsta umf sé umf með st sem hekluð er frá réttu. Heklið nú þannig: Heklið A.1, heklið A.2 yfir næstu 36-36-42-48-54-54 st, heklið A.3, snúið við og heklið til baka (ekki er heklað yfir síðustu 24 st í umf = hálsmál). Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 82-90-98-109-121-133 cm, heklið nú 3 umf með 1 st í hvern st (= kantur að framan), stykkið mælist 84-92-100-111-123-135 cm. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. NEÐRA STYKKI: HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Byrjið fyrir miðju að aftan meðfram neðri kanti á efra stykki (kantur fyrir tölur er fyrir miðju að framan) og heklið 156-174-192-210-234-258 st – heklið ca 2 st um hvern st, þegar heklað er yfir kant að framan er hægri kantur langður yfir vinstri kant og heklað er í gegnum bæði stykkin, stykkið er nú heklað áfram í hring. Endið umf með 1 kl í fyrsta st. UMFERÐ 1: Heklið 1 st í hvern st. UMFERÐ 2: * Heklið 1 st, 1 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn. UMFERÐ 3: Heklið 1 st í hvern st og 1 st um hverja ll. UMFERÐ 4-8: Heklið 1 st í hvern st. Heklið síðan þannig: Heklið A.4, endurtakið síðan A.5 umf hringinn. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist ca 10 cm – passið að þetta er umf þar sem heklaðir eru st, aukið út um 12 st jafnt yfir í stykki, endurtakið útaukningu með 7 cm millibili 5 sinnum til viðbótar = 228-246-264-282-306-330 st. Haldið áfram með A.4 og A.5 þar til stykkið mælist 51-54-54-54-54-57 cm, stykkið mælist alls 83-86-89-92-95-98 cm. Klippið frá og festið enda. HEKLAÐUR KANTUR í kringum handveg: Heklið 1 fl, * 3 ll, hoppið fram ca 1 cm, heklið 1 fl *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kl í byrjun umf. HEKLAÐUR KANTUR í kringum hálsmál: Byrjið fyrir miðju að frama, neðst í hægri kanti: Heklið 1 fl, * 3 ll, hoppið fram ca 1 cm, heklið 1 fl *, endurtakið frá *-* upp meðfram kanti að framan, í kringum hálsmál og niður meðfram vinstri kanti að framan. Festið 4 tölur jafnt yfir á vinstri kant að framan, sú efsta ca 2 cm frá efri kanti, sú neðsta ca 4 cm frá neðri kanti. Hneppið tölunum í gegnum götin á milli st í hægri kanti að framan. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (11)
Lauren McRoberts wrote:
Why aren't the diagrams showing up? They don't seem to be working. Please fix them. Thank you!
28.06.2016 - 13:53DROPS Design answered:
Dear Mrs Roberts, when working diagrams, you first work A.1 (1 time in width), then repeat A.2 in width until 2 sts remain, and finish with A.3. Happy crocheting!
28.06.2016 - 16:09