Summer Bliss |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð tunika úr DROPS Belle með a-formi og gatamynstri. Stærð S-XXXL.
DROPS 167-18 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 4 ll. Umf endar á 1 kl í 4. ll frá byrjun umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. ÚRTAKA: Fækkið um 1 st með því að hekla næstu 2 st saman þannig: Heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. ÚRTAKA LL-BOGAR: Fækkið um 1 ll-boga í byrjun á umf séð frá réttu þannig: Heklið 2 ll, hoppið yfir fyrsta ll-bogann, heklið 1 st um næsta ll-boga. Í næstu umf er hoppað yfir síðasta ll-bogann séð frá röngu (= fyrsti ll-boginn séð frá réttu). Fækkið um 1 ll-boga í lok umf séð frá réttu þannig: Heklið þar til 1 ll-bogi er eftir, 2 ll, hoppið yfir síðasta ll-bogann, heklið 1 l í hverja af þeim l sem eftir eru. Í næstu umf er hoppað yfir fyrsta ll-bogann, heklið 2 ll og 1 st um næsta ll-boga séð frá röngu (= síðasti ll-boginn séð frá réttu). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, neðan frá og upp, síðan er stykkinu skipt í framstykki og bakstykki og heklað er fram og til baka upp yfir öxl. Að lokum er heklaður kantur neðst niðri með netmynstri. Byrjun umf = í hægri hlið. TUNIKA: Heklið 195-205-223-242-270-289 lausar ll með heklunál nr 4,5 með Belle og tengið saman í hring með 1 kl. Heklið 4 ll – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið síðan þannig: Heklið 1 st í hverja af fyrstu 6-2-6-4-4-2 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* 26-28-30-33-37-40 sinnum til viðbótar = 168-176-192-208-232-248 st + 4 ll í byrjun umf. Haldið síðan áfram hringinn með 1 st í hvern st þar til stykkið mælist 5-5-6-6-7-7 cm. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið nú mynstur frá 2. umf í mynstri A.1 (= 8 st) 21-22-24-26-29-31 sinnum í umf. ATH: A.2 sýnir hvernig umf byrjar og endar. Í síðustu umf í mynstri er fækkað um 32 st jafnt yfir í öllum stærðum – LESIÐ ÚRTAKA = 136-144-160-176-200-216 st + þær 4 ll í byrjun umf. Haldið síðan áfram með 1 st í hvern st þar til stykkið mælist 25-25-26-26-27-27 cm á hæðina. Heklið síðan A.1 eins og áður í umf 2 í mynstri nema nú eru heklaðar 17-18-20-22-25-27 mynstureiningar í umf. ATH: A.2 sýnir hvernig umf byrjar og endar. Endið á undan 2 síðustu umf í mynstri A.1. Heklið nú 1 umf með 1 st í hvern st og lykkjufjöldinn er jafnaður til 132-136-154-166-190-198 st. Klippið frá. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Nú skiptist stykkið upp í 2 hluta, í fram- og bakstykki. BAKSTYKKI: Hoppið yfir 4-6-6-6-6-7 st fyrir handveg, heklið A.3 (= 8 st), A.4 (= 3 st) 16-16-19-21-25-26 sinnum á breiddina, heklið A.5 (= 6 st) = 19-19-22-24-28-29 ll-bogar í fyrstu umf. Heklið nú eftir stærðum eins og útskýrt er frá að neðan: Stærð S og M: Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og útskýrt er í umf 2 og 3 í A.3 til A.5 þar til stykkið mælist 14-15 cm – passið uppá að næsta umf sé hekluð eins og umf 3! Stærð L, XL, XXL og XXXL: Haldið áfram fram og til baka með mynstri eins og útskýrt er í umf 2 og 3 í A.3 til A.5, JAFNFRAMT í næstu umf er l fækkað fyrir handveg á hvorri hlið innan við 3 l – LESIÐ ÚRTAKA LL-BOGAR. ATH: Heklið nú 3 tbst í stað 3 st í hvorri hlið í umf þar sem úrtakan er (þetta er gert svo að kantarnir verði ekki of stífir!). Endurtakið úrtöku 0-1-2-2 sinnum til viðbótar (= alls 1-2-3-3-3 úrtökur í hvorri hlið) = 20-20-22-23 ll-bogar eftir. Haldið nú áfram með ll-bogum eins og útskýrt er í umf 2 og 3 í mynstri A.3 til A.5 þar til stykkið mælist 16-17-18-19 cm – passið uppá að næsta umf sem er hekluð sé eins og umf 3. Haldið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan í öllum stærðum: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 3 st og 4-4-4-4-5-5 heila ll-boga (þ.e.a.s. ll-bogar með 2 ll), heklið 1 st í næsta st, heklið síðan 24-24-26-26-26-28 st jafnt yfir næstu 10-10-11-11-11-12 ll-boga frá fyrri umf, heklið 1 st í næsta st og 1 st um næsta ll-boga, haldið áfram með 4-4-4-4-5-5 heila ll-boga (þ.e.a.s. ll-bogar með 2 ll) og 1 st í hvern af ystu 3 st. Nú eru 26-26-28-28-28-30 st eftir hverjum öðrum fyrir miðju á bakstykki. Heklið síðan hvora öxl til loka fyrir sig. Snúið við og heklið eins og áður yfir fyrstu 4-4-4-4-5-5 ll-boga, heklið 1 st í hvern af fyrstu 3 st af þeim 26-26-28-28-28-30 st. Snúið við og heklið 16-16-16-16-19-19 st jafnt yfir fyrir öxl. Klippið frá og festið enda. Heklið hina öxlina alveg eins nema spegilmynd: Byrjið við handveg og heklið 1 st í hvern af ystu 3 st, heklið síðan ll-boga eins og áður yfir de 4-4-4-4-5-5 ll-boga og 1 st í hvern af næstu 3 st. Snúið við og heklið 16-16-16-16-19-19 st jafnt yfir öxl. Klippið frá og festið enda. FRAMSTYKKI: Hoppið yfir 4-6-6-6-6-7 st fyrir handveg. Heklið A.3 (= 8 st), A.4 (= 3 st) 16-16-19-21-25-26 sinnum á breiddina, heklið A.5 = 19-19-22-24-28-29 ll-bogar í fyrstu umf og það eru 4-6-6-6-6-7 st eftir fram að byrjun á bakstykki. Heklið síðan eftir stærðum eins og útskýrt er frá að neðan: Stærð S og M: Haldið áfram fram og til baka með umf 2 og 3 í A.3 til A.5 þar til heklaðar hafa verið 5 umf í báðum stærðum. Nú er heklað þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 3 st og 4-4 heilir ll-bogar (þ.e.a.s. ll-bogar með 2 ll), heklið 1 st í næsta st, heklið síðan 24-24 st jafnt yfir næstu 10-10 ll-boga, heklið 1 st í næsta st og 1 st um næsta ll-boga, haldið áfram með 4-4 heila ll-boga (þ.e.a.s. ll-bogar með 2 ll) og 1 st í hvern af ystu 3 st. Nú eru 26-26 st fyrir hálsmáli fyrir miðju að framan. Stærð l, XL, XXL, XXXL: Haldið áfram fram og til baka með umf 2 og 3 í A.3 til A.5, JAFNFRAMT í næstu umf er l fækkað fyrir handveg í hvorri hlið eins og á bakstykki og þegar heklaðar hafa verið 5 umf með ll-bogum eru heklaðir st fyrir hálsmáli fyrir miðju á framstykki þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 3 st og 4-4-5-5 heilir ll-bogar (þ.e.a.s ll-bogar með 2 ll), heklið 1 st í næsta st. Heklið síðan 26-26-26-28 st jaftn yfir næstu 11-11-11-12 ll-boga frá fyrri umf, heklið 1 st í næsta st og 1 st um næsta ll-boga, haldið áfram með 4-4-5-5 heila ll-boga (þ.e.a.s. ll-bogar með 2 ll) og 1 st í hvern af ystu 3 st. Nú eru 28-28-28-30 st fyrir hálsmáli fyrir miðju á framstykki. Haldið nú áfram eins og útskýrt er frá að neðan í öllum stærðum: Heklið nú hvora öxl til loka fyrir sig. Snúið við og heklið ll-boga eins og áður yfir fyrstu 4-4-4-4-5-5 ll-boga, heklið 1 st í hvern af fyrstu 3 st af þeim 26-26-28-28-28-30 st. Snúið við og haldið svona áfram með ll-boga og 3 st í hvorri hlið þar til stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm. Snúið við og heklið 16-16-16-16-19-19 st jafnt yfir öxl. Klippið frá og festið enda. Heklið hina öxlina á sama hátt nema spegilmynd: Þ.e.a.s. byrjið við handveg! FRÁGANGUR: Saumið saman axlasauma. Saumið l eina og eina fallega saman og passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur! Klippið frá og festið enda. KANTUR NEÐST: Heklið nú kant neðst á stykki þannig: UMFERÐ 1: Festið endann með 1 fl og 3 ll í byrjun umf. * 2 ll, hoppið yfir ca 1½ cm, 1 st *, endurtakið frá *-* í kringum alla umf en endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf = ca 71-73-80-87-97-104 lm-bogar í umf. UMFERÐ 2: Heklið kl fram að fyrsta ll-boga. Heklið nú þannig: Heklið 3 ll, * 2 ll, 1 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* í kringum alla umf, en endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Endurtakið síðan umf 2 þar til stykkið mælist alls 78-80-82-84-86-88 cm (mælt frá öxl) eða óskaðri lengd. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (42)
Helen wrote:
Er nu kommet til ryggen og så forstår jeg ikke diagrammerne? Skal jeg hækle frem og til bage.? Og over hvor. Mange masker? Og. Kører jeg først hele a3 og så a4 og sidst a5? Jeg hækler str m
25.04.2016 - 22:11DROPS Design answered:
Hej Helen. Du haekler frem og tilbage: (du starter med at springe over til aermegab) A.3 (= 8 st), A.4 (= 3 st) 16-16-19-21-25-26 gange i bredden (dvs, du gentager A.4 16 gange i str M), hækl A.5 (= 6 st). Du gentager hele diagrammet hver gang. Naar du haekler frem og tilbage saa laeser du diagrammet fra höjre mod venstre (retten) og fra venstre mod höjre (vrangen).
26.04.2016 - 13:53Doreen wrote:
I figured the flower pattern out. Thank you. All your patterns are beautiful. I have made many
02.04.2016 - 03:41Doreen Kurasz wrote:
Do you have a video for the flowers on pattern summer bliss? I can not figure out the top of the flower on A1 row 4. Thank you
01.04.2016 - 17:38DROPS Design answered:
Dear Mrs Kurasz, on row 4 in A.1 work as follows: (A.2 = 1 ch), then *5 ch, 2 dtr worked tog into the top of the 2 dtr worked tog on previous row, then 2 dtr worked tog into the top of the next 2 dtr worked tog on previous row, 5 ch, 1 sc in the top of the same 2 dtr worked tog on previous row*, repeat from *-*. Happy crocheting!
02.04.2016 - 17:42Marjan wrote:
Ik kan de patronen niet uitprinten, ik krijg alleen de afbeelding te zien. Met name van de nieuwste patronen.
17.02.2016 - 11:27DROPS Design answered:
Hoi Marjan. Druk op AFDRUKKEN:PATROON en niet AFBEELDING, dan komt het goed.
17.02.2016 - 11:29Hege Thoner wrote:
Hei Else Margrethe Jeg har allerede heklet 2 stk. En i m,og en i l. Nå skal jeg lage en i Xl. De er supersøte,så stå på! Prøv igjen! Hege
04.02.2016 - 19:56Else Margrethe Blom wrote:
Denne hæklede opskrift er meget dårligt anført i diagrammet. Mønsterborten er ikke til at finde ud af. Så jeg har opgivet at hækle denne ellers søde tunika.
02.02.2016 - 12:41Sabine wrote:
......man beachte, wie das Model da steht.. die kaschiert sehr gut, dass das Kleid nicht tailliert ist...das ist bestimmt ziemlich sackartig...hatte letztes Jahr auch so ein ähnliches Kleid von Drops gemacht (162-22), und war sehr enttäuscht als es fertig war! Ich habe es dann in eine Jacke geändert, und bei dem hier bin ich sehr daran erinnert.......
17.12.2015 - 09:13Kucki wrote:
Ein wunderschönes Überkleid!!!
12.12.2015 - 15:33Jacqueline wrote:
Zie onder
11.12.2015 - 13:16Jacqueline wrote:
Ik zou het een stukje korter en als tuniekje op een broek dragen
11.12.2015 - 12:44