Olivia |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Heklað teppi úr DROPS Big Merino með sólfjaðramynstri og ferningum
DROPS 146-35 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- 3 ST HEKLAÐIR SAMAN Í BYRJUN UMF: Heklið 3 ll, heklið næsta st um sömu ll, bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina í lokin og að draga þráðinn í gegn, heklið 1 st til viðbótar um sömu ll, dragið nú síðasta uppsláttinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. 3 ST HEKLAÐIR SAMAN: Heklið 1 st um ll, bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina í lokin og að draga þráðinn í gegn, heklið 1 st til viðbótar um sömu ll, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina í lokin og að draga þráðinn í gegn, heklið síðasta st um sömu ll, dragið nú síðasta uppsláttinn í gegnum allar 4 l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Byrjið að hekla miðjuna á teppinu með sólfjaðramynstri (A.1) eins og útskýrt er frá að neðan. Síðan eru ferningar heklaðir sem mynda ramma utan um miðjuna á teppinu. Það er mikilvægt að heklfestan haldist bæði í sólfjaðramynstri og hekluðum ferningum svo að bæði stykkin passi saman í lokin. MIÐJA Á TEPPI: Heklið 70 (118) ll með heklunál nr 6 með Big Merino. Heklið nú eftir mynsturteikningu A.1, þ.e.a.s. heklið þannig: UMFERÐ 1: Heklið 2 st í 10. ll frá heklunálinni, 2 ll, 2 st í sömu ll, * hoppið yfir 5 ll, í næstu ll er heklað 2 st + 2 ll + 2 st *, endurtakið frá *-* alls 9 (17) sinnum, heklið 1 ll, hoppið yfir 5 ll og endið á 1 st í síðustu ll, snúið við = 10 (18) st-hópar í umf. UMFERÐ 2: Heklið 4 ll (jafngilda 1 st + 1 ll), um hvern ll-boga mitt í hvern st-hóp eru heklaðir 2 st + 2 ll + 2 st, endið umf á 1 ll og 1 st í 3. ll frá byrjun fyrri umf. Endurtakið umf 2 fram og til baka þar til stykkið mælist 72 (104) cm. Teppið mælist nú 40 (72) cm á breidd og 72 (104) cm á hæð. KANTUR UTAN UM MIÐJU Á TEPPI: UMFERÐ 1: Byrjið frá réttu og heklið fl í kringum teppið eins og útskýrt er í A.2 – þ.e.a.s. meðfram ll-umferð í byrjun á teppinu eru heklaðar 3 fl um hvern ll-boga (þ.e.a.s. á milli hverra st-hópa) og heklið 1 fl í botninn á herjum st-hópi, í hvert horn á teppinu er heklað 2 fl + 3 ll + 2 fl, upp meðfram hvorri hlið á teppinu eru heklaðar 3 fl um hvern st og efst á teppinu (þ.e.a.s. meðfram síðustu umf) eru heklaðar 2 fl um hvern ll-boga og 2 fl á milli hverra st-hópa. UMFERÐ 2: Snúið við, heklið 3 ll (jafngilda 1 st), heklið nú 1 st í hverja fl og um ll-boga í hverju horni er heklað 2 st + 2 ll + 2 st, endið umf á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 3: Heklið eins og umf 2, en heklið 1 st í hvern st (í stað 1 st í hverja fl). Teppið mælist nú 48 (80) cm á breidd og 80 (112) cm á hæð. HEKLAÐUR FERNINGUR: Heklið 4 ll með heklunál nr 6 með Big Merino og tengið í hring með 1 kl í 1. ll. Heklið nú eftir mynsturteikningu A.3, þ.e.a.s. heklið þannig: UMFERÐ 1: Heklið 4 ll (jafngilda 1 st + 1 ll), * 1 st um hringinn, 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 11 sinnum og endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 12 st með 1 ll á milli hverra st. UMFERÐ 2: Heklið 1 kl um fyrstu ll, heklið 3 ST SAMAN Í BYRJUN UMF – sjá skýringu að ofan, * 3 ll, 3 ST HEKLAÐIR SAMAN í næstu ll – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* alls 11 sinnum og endið á 3 ll og 1 kl efst í fyrsta st-hópinn = 12 st-hópar með 3 ll á milli hverra st-hópa. UMFERÐ 3: Heklið 1 kl um fyrsta ll-boga, 1 ll, 1 fl um sama ll-boga, * 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en endið síðustu endurtekninguna á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf (í stað 1 fl um næsta ll-boga). UMFERÐ 4: Heklið 1 kl um fyrsta ll-boga, 1 ll, 1 fl um sama ll-boga, * 5 ll, 1 fl í næsta ll-boga, 1 ll, í næsta ll-boga (ll-bogi með 6 ll) heklið 5 st + 3 ll + 5 st (= horn), 1 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en síðasta endurtekningin endar á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf (í stað 1 kl um næsta ll-boga). UMFERÐ 5: Heklið kl að miðju fyrsta ll-boga (ll-bogi með 5 ll), heklið 5 ll (jafngilda 1 hst + 3 ll), * 1 fl um ll á undan st-hóp, 5 ll, 1 fl um ll-boga í horni, 3 ll, 1 fl um sama ll-boga, 5 ll, 1 fl um ll-bogann eftir næsta st-hóp, 3 ll, 1 hst í næsta ll-boga, 3 ll *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en í endið síðustu endurtekningu með 1 kl í 2. ll frá byrjun umf (í stað 1 hst um næsta ll-boga, 3 ll). Klippið frá og festið enda, ferningurinn mælist 16 x 16 cm. Heklið alls 20 (28) ferninga. FRÁGANGUR: Staðsetjið ferninga með 5 (7) ferninga á breidd og 7 (9) ferninga á hæð. Leggið 2 ferninga saman með röngu á móti röngu og heklið þá saman (heklað í í kringum ytri kant á báðum ferningunum samtímis) þannig: Heklið 1 fl um ll-boga í horninu á ferningunum, 1 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 1 ll, 1 fl um sama ll-boga, 1 ll, 1 fl um sama ll-boga, * 1 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 1 ll, 1 fl um sama ll-boga *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 1 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 1 ll, 1 fl um sama ll-boga, 1 ll, 1 fl um sama ll-boga, 1 ll, 1 fl um ll-boga í horninu. Klippið frá og festið enda. Heklið alveg eins saman þá ferninga sem eftir eru. Heklið nú miðjuna á teppinu saman við ramman (látið bæði stykkin liggja flöt á meðan gengið er frá svo að bilið á milli festipunkta er hægt að færa til á meðan): Byrjið á 1 fl um ll-bogann í horninu á rammanum, heklið 1 ll, 1 fl um ll-boga í horninu á miðjunni á teppinu, * 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga á rammanum, 1 ll, hoppið yfir ca 3 st á miðjunni á teppinu, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* í kringum allt teppið – passið uppá þegar heklað er saman að heklað sé jafnt og fínt. BLÚNDUKANTUR Í KRINGUM TEPPIÐ: Heklið blúndukant í kringum allt teppið þannig: Heklið 1 fl um hvaða ll-boga sem er, * 4 ll, 1 st í þriðju ll frá heklunálinni, 1 tbst í fjórðu ll frá heklunálinni, hoppið yfir ca 3-3½ cm á teppinu, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* í kringum allt teppið – ATH: Passið uppá að það verði heill bogi í hverju horni og endið umf á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (73)
Carla Hamilton wrote:
Joining the squares together. I follow the directions, but instead of a smooth seam, it’s more lumpy. Is that normal, or am I doing something wrong?
21.11.2020 - 20:20DROPS Design answered:
Dear Mrs Hamilton, sorry for late answer - squares should be nicely flat, you can block them if necessary. Remember also to make the chain stitches on the last round as width as a sc/dc is wide to avoid that the last round tighten piece. Happy crocheting!
26.04.2021 - 13:38Dorothy Linda Alcroft wrote:
Very pretty and easy to understand, feminine, keep up the good work
14.05.2020 - 01:13Kelly wrote:
Is er een complete videotutorial van de gehaakte sokken van Milla ? Heeeeel graag. Mvg, Kelly
12.10.2019 - 04:29Anna wrote:
Witam Chciałabym z tego wzoru zrobić obrus z kordonka na stół. Może macie jakieś rady co do szydełka i do nitki ( bo może nie kordonek ?) Proszę także wyjaśnić legendę, ( nie potrafię czytać ze schematów- to moja pierwsza praca) 1 oz - ?? 1 oł -oczko 1 oś - ??? 1 psł - półsłópek 1 sł - słupek
26.10.2018 - 10:48DROPS Design answered:
Witaj Anno! Jeśli chcesz użyć kordonka, to na etykiecie będzie informacja jakiego szydełka użyć. Jeśli to miałby być obrus, ja osobiście wybrałabym DROPS Lace, cieniutka mieszanka alpaki i jedwabiu, bardzo wydajna, do końca roku z 30% zniżki :) Szydełko 3,5-4. Skróty: oz oczko zamykające, oł oczko łańcuszka, oś oczko ścisłe, psł półsłupek, sł słupek. Powodzenia!
28.10.2018 - 10:05Maryam wrote:
Hi...thanks for sharing...can I ask how many rows of fan should I crochet for both smal and large size blanket ...since I used this pattern to crochet a table cloth with different yarn...so confused plz help me
26.09.2016 - 11:54DROPS Design answered:
Dear Maryam, center of blanket should measure 72 (104) cm height, ie crochet fan until you get these measurements - adjust to the lenght you'd like to - we are not able to adjust each pattern to each individual request, for any further personnal assistance you are welcome to contact the store where you bought your yarn. Happy crocheting!
26.09.2016 - 13:10Reina wrote:
How many squares do I have to make for small blanket, I can't find it on the directions. Thank you
04.06.2016 - 01:01DROPS Design answered:
Dear Reina, you will work a total of 20 squares for the small blanket - see at the end of section "Crochet Square". Happy crocheting!
06.06.2016 - 08:54Denise Hembree wrote:
Can you tell me how many single crochet are down the side of the length of 41". Or how many double crochet down the 41". It seems to ruffle putting one in every single crochet. I do wish you would include stitch counts in patterns. Thank you
23.05.2016 - 21:55DROPS Design answered:
Dear Mrs Hembree, On first row, you crochet 3 sc in each dc (each 3 ch replacing 1st dc) along both long sides in the beg/end of rows. On 2nd row, work then 1 dc in each sc + 2 dc, 3 ch, 2 dc in each corner. Number of sts may vary with your tension in height (number of rows worked in A.1). Happy crocheting!
24.05.2016 - 08:52Ingunn B. Wang wrote:
Hei! Hvor mye garn går det med til 1 rute? Jeg tenkte å lage min egen vri på teppet, kun med ruter. Jeg ser på de ulike garnalternativene og stusser over at det er forskjell på pinnetykkelsene. Da blir vel resultatet feil ift oppskriften? Jeg vurderer å bruke Vivaldi som har pinne størrelse 4. Mvh Ingunn
16.11.2015 - 15:09Debbie Brits wrote:
Hi, could you perhaps tell me how many times to repeat row 2, for the centre of the blanket, to have a 104cm vertically length? Thank you!
06.09.2015 - 13:46DROPS Design answered:
Dear Mrs Brits, this may vary with your tension in height, just repeat row 2 until work measures 104 cm in total. Happy crocheting!
07.09.2015 - 11:22Karen wrote:
Beautiful pattern. I made this for my new grandniece. It's the loveliest baby blanket I have ever crocheted.
23.07.2015 - 15:04