Nautical Melody |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er heklað neðan frá og upp með röndum og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.
DROPS 239-9 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI: * 1 umferð með litnum ljós blár, 4-4-4-5-5-5 umferðir með litnum natur *, heklið frá *-* alls 3 sinnum á hæðina, endið með 1 umferð með litnum ljós blár. Síðan er heklað að loknu máli með litnum natur. RENDUR ERMI: * 1 umferð með litnum ljós blár, 4-4-4-5-5-5 umferðir með litnum natur *, heklið frá *-* alls 2 sinnum á hæðina, endið með 1 umferð með litnum ljós blár. Síðan er heklað að loknu máli með litnum natur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka í stykkjum, neðan frá og upp. Stykkin eru saumuð saman. Að lokum er heklaður kantur í kringum hálsmál. FRAMSTYKKI: Heklið 59-67-71-75-83-87 LOFTLYKKJA – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 7 með litnum natur í DROPS Melody. Heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, síðan er hekluð 1 fastalykkja í hverja loftlykkju = 58-66-70-74-82-86 fastalykkjur og 1 loftlykkja. Næsta umferð er hekluð frá réttu eins og mynsturteikning A.1, þ.e.a.s. heklið A.1A í fyrstu fastalykkju, heklið A.1B þar til 1 fastalykkja er eftir, heklið A.1C í síðustu fastalykkju = 28-32-34-36-40-42 stuðlahópar + 1 stuðull í hvorri hlið. Næsta umferð er hekluð eins og mynsturteikning A.2, þ.e.a.s. A.2A í fyrsta stuðul, heklið A.2B þar til 1 stuðull er eftir, heklið A.2C í síðasta stuðul. Haldið svona áfram með mynstur – A.2 er endurtekið á hæðina. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 14-14-15-15-16-16 cm, heklið RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. Þegar rendur hafa verið heklaðar til loka, heklið með litnum natur að loka máli. Jafnframt er lykkjum fækkað fyrir handveg og hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm, fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Heklið 1 keðjulykkju í fyrsta stuðul í umferð, heklið 1 keðjulykkju efst í fyrsta stuðlahóp, 3 loftlykkjur (= A.2A), heklið A.2B þar til 1 stuðlahópur er eftir og 1 stuðull í lok umferðar, heklið A.2C í stuðlahópinn, snúið. Heklið síðan fram og til baka eins og áður með 26-30-32-34-38-40 stuðlahópa og 1 stuðul í hvorri hlið. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Þegar stykkið mælist ca 50-52-54-54-56-58 cm, heklið A.3 yfir fyrstu axlalykkjur frá réttu þannig: Heklið A.3A í fyrsta stuðul, heklið A.3B alls 7-9-10-10-12-13 sinnum, heklið A.3C = 9-11-12-12-14-15 stuðlahópa með 1 stuðul í hvorri hlið. Haldið svona áfram með A.3 fram og til baka. Þegar A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina, heklið 7-9-10-10-12-13 stuðlahópa fram og til baka eins og áður með 1 stuðul í hvorri hlið þar til framstykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm frá uppfitjunarkanti. Klippið þráðinn og festið. Snúið stykkinu, byrjið í hlið frá röngu og heklið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: Heklið bakstykkið alveg eins og framstykkið þar til stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm. Byrjið frá réttu í hlið og heklið öxl þannig: Heklið A.2A í fyrsta stuðul, heklið A.3B alls 7-9-10-10-12-13 sinnum, heklið A.2C efst í næsta stuðlahóp, snúið. Heklið 7-9-10-10-12-13 stuðlahópa til baka með 1 stuðul í hvora hlið. Klippið þráðinn og festið. Bakstykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá uppfitjunarkanti. Snúið stykkinu, byrjið í hlið frá röngu og heklið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Heklið 43-45-49-51-53-55 LOFTLYKKJUR – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 7 með litnum natur. Heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 42-44-48-50-52-54 fastalykkjur og 1 loftlykkja. Næsta umferð er hekluð eins og mynsturteikning A.1, þ.e.a.s. heklið A.1A í fyrstu fastalykkju, heklið A.1B þar til 1 fastalykkja er eftir, heklið A.1C í síðustu fastalykkju = 20-21-23-24-25-26 stuðlahópar + 1 stuðull í hvorri hlið. Næsta umferð er hekluð eins og mynsturteikning A.2, þ.e.a.s. heklið A.2A í fyrsta stuðul, heklið A.2B þar til 1 stuðull er eftir, heklið A.2C í síðasta stuðul. Haldið svona áfram með mynstur – A.2 er endurtekið á hæðina. Þegar stykkið mælist 22-19-19-15-13-12 cm, heklið RENDUR ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar rendur hafa verið heklaðar til loka, heklið með litnum natur þar til ermin mælist 47-44-44-43-41-40 cm frá uppfitjunarkanti. Klippið þráðinn og festið. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma kant í kant þannig að saumurinn verði flatur. Saumið hliðarsauma – byrjið efst við handveg og saumið kant í kant að byrjun á klauf neðst ca 20 til 22 cm í hvorri hlið. Saumið ermasauma saman, en skiljið eftir klauf ca 2 cm efst á ermi. Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við annan axlasauminn, heklið 1 keðjulykkju með heklunál 7 með litnum natur, heklið 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli), heklið síðan ca 36-36-36-42-42-42 stuðlahópa jafnt yfir í kringum hálsmál – stillið e.t.v. fjölda stuðlahópa þannig að kanturinn í hálsmáli leggist fallega, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Heklið 1 umferð til viðbótar með 1 stuðlahóp á milli hverra stuðlahópa frá fyrri umferð (umferðin byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju). Klippið þráðinn og festið. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (12)
Marja Stoelwinder wrote:
Mooie trui
18.01.2023 - 08:55Christabel Adegoke wrote:
Dream Cloud
17.01.2023 - 22:19