Ef þú prjónar sléttar lykkjur frá réttu og hefur misst eina lykkju niður nokkrar umferðir, ekki örvænta! Hér sérðu hvernig þú getur tekið upp tapaða lykkju og prjónað áfram.
Mynd 1: Þú hefur misst niður eina lykkju og hún hefur raknað nokkrar umferðir. Þá er mjög góð hugmynd að nota heklunál til þess að laga þetta.
Mynd 2: Heklunálinni er stungið í lykkjuna sem hefur raknað upp.
Mynd 3: Notaðu heklunálina til þess að krækja í fyrsta lausa þráðinn sem er aftan við lykkjuna.
Mynd 4: Dragðu lausa þráðinn í gegnum lykkjuna. Nú myndast ný lykkja á heklunálinni.
Mynd 5: Endurtaktu þetta og stingdu heklunálinni aftan við næsta lausa þráð aftan við nýju lykkjuna.
Mynd 6: Dragðu lausa þráðinn í gegn og þá hefur þú lokið einni umferð til viðbótar. Haltu svona áfram þar til allar lykkjurnar hafa verið prjónaðar upp með heklunálinni.
Mynd 7: Settu til baka síðustu lykkjuna frá heklunálinni á vinstrihandarprjón.
Mynd 8: Nú hefur þú prjónað upp töpuðu lykkjuna og getur haldið áfram að prjóna slétt frá réttu og brugðið frá röngu.
Giuseppina Pelissetti wrote:
Io vi amo, mi avete aperto un mondo, grazie
02.12.2021 - 01:36: