DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Timeless Beauty Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk með hringlaga berustykki, garðaprjóni og gatamynstri, prjónið ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 160-8
DROPS Design: Mynstur nr bs-082
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
300-350-400-400-450-500 gr litur nr 1306, púður

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni, eða 24 l og 48 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 2,5 – fyrir garðaprjón.
DROPS PERLUTALA, bogalaga (hvít) NR 521: 5-5-5-5-6-6 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.9. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan, þ.e.a.s. frá hægri hlið séð frá réttu (þ.e.a.s. séð frá prjónstefnu). 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 2, 9, 16, 23 og 30 cm
STÆRÐ M: 2, 9, 16, 23 og 30 cm
STÆRÐ L: 2, 10, 18, 26 og 34 cm
STÆRÐ XL: 2, 10, 18, 26 og 34 cm
STÆRÐ XXL: 2, 9, 16, 23, 30 og 37 cm
STÆRÐ XXXL: 2, 9, 16, 23, 30 og 37 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónið ofan frá og niður, fram og til baka á hringprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 133-141-157-161-161-177 l (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 2,5 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 1 umf sl frá röngu. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kant að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú MYNSTUR A.1 með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið (í umf 9 er síðasta l prjónuð á undan kanti að framan slétt), JAFNFRAMT í 3. umf í mynstri er aukið út um 18-20-30-32-32-34 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING og í 11. umf er aukið út um 15-19-29-29-29-33 l jafnt yfir = 166-180-216-222-222-244 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram í garðaprjóni og 10 prjónamerki sett í stykkið þannig: Prjónið fyrstu 16-18-18-21-21-23 l, setjið eitt prjónamerki, síðan er sett eitt prjónamerki með 15-16-20-20-20-22 l millibili, eftir síðasta prjónamerki eru 15-18-18-21-21-23 l. Í næstu umf frá réttu byrjar útaukning. Aukið út til skiptis hægra og vinstra megin við prjónamerki (= 10 útaukningar). Aukið út í annarri hverri umf 0-2-0-3-7-7 sinnum, í 4. hverri umf 10-10-9-9-8-8 sinnum og í 6. hverri umf 5-5-7-7-7-8 sinnum = 316-350-376-412-442-474 l. Í næstu umf frá réttu er aukið út um 7-3-9-1-3-9 l jafnt yfir = 323-353-385-413-445-483 l. Stykkið mælist ca 19-20-21-22-23-24 cm. Í næstu umf (= frá röngu) prjónið þannig: sl yfir fyrstu 51-55-61-66-72-80 l (= framstykki), setjið næstu 66-72-76-80-84-88 l á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-10-12-12-12 l undir ermi, prjónið næstu 89-99-111-121-133-147 l (= bakstykki), setjið næstu 66-72-76-80-84-88 l á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-10-12-12-12 l undir ermi, prjónið næstu 51-55-61-66-72-80 l (= framstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 211-229-253-277-301-331 l fyrir fram- og bakstykki. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið nú þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.2, A.3 þar til 12 l eru eftir, A.4, 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. ATH: þessar 6 kantlykkjur halda áfram í garðaprjóni til loka! Þegar A.2-A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina, haldið áfram með A.5 (í umf 7 eru prjónaðar síðustu l á undan kanti að framan slétt). Prjónið nú A.6, aukið út um 6-0-0-0-0-6 l jafnt yfir í 1. umf (síðasta l á undan kant að framan er prjónuð slétt) = 217-229-253-277-301-337 l. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með A.7 1 sinni á hæðina (í 5. umf í mynstri er síðasta l á undan kanti að framan prjónið slétt). Prjónið nú A.8, aukið út um 4-8-8-8-8-4 l jafnt yfir í 1. umf (síðasta l á undan kanti að framan er prjónuð slétt) = 221-237-261-285-309-341 l. Þegar allt A.X hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.X 0-0-0-0-1-1 sinni til viðbótar áður en haldið er áfram með afgang af mynstri. Haldið nú áfram með A.7 (síðasta l á undan kanti að framan er prjónuð slétt). Prjónið nú þannig: A.2, A.3 þar til 6 l eru eftir á undan kanti að framan, JAFNFRAMT er aukið út um 2-4-4-4-4-2 l jafnt yfir í 1. umf í A.3, A.4 = 223-241-265-289-313-343 l. Prjónið nú A.7 0-0-1-1-0-0 sinni á hæðina (í umf 5 er síðasta l í umf prjónuð slétt). Þegar allt mynstrið hefur verið prjónað til loka eru prjónaðar 2 umf sléttprjón innan við kant að framan, JAFNFRAMT í umf frá réttu og aukið út um 17-20-23-25-27-27 l jafnt yfir = 240-261-288-314-340-370 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið garðaprjón fram og til baka í 2 cm. Fellið af til skiptis 1 l sl og 1 l br. Stykkið mælist nú ca 54-55-58-59-65-66 cm.

ERMI:
Ermin er prjónuð í garðaprjóni fram og til baka á hringprjóna. Nú eru 66-72-76-80-84-88 l fyrir hvora ermi. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið til baka l af þræði á hringprjóna nr 2,5 og fitjið upp 6-6-6-7-7-7 l lok 2 næstu umf = 78-84-88-94-98-102 l. Þegar ermin mælist 4 cm er fækkað um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið með því að prjóna 2 l slétt saman. Endurtakið úrtöku með 1½-2-2½-3-3½-3½ cm millibili 7-6-5-4-3-3 sinnum til viðbótar = 62-70-76-84-90-94 l. Þegar stykkið mælist 19 cm í öllum stærðum er prjónað þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.9 þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar allt A.9 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið 2 umf garðaprjón. Fellið laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma undir ermum yst í lykkjubogann. Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, sláið uppá prjóninn
symbols = 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn
symbols = sláið uppá prjóninn,takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = útaukning: Aukið út l jafnt yfir - sjá skýringu í uppskrift
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Timeless Beauty Cardigan

LaceKat, Hungary

Timeless Beauty Cardigan

Guilaine, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 160-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (50)

country flag Silvana wrote:

Altro dubbio!😭 Ma gli aumenti prima a dx e poi a sx, non devono essere distanziati da 4 ferri tra di loro? Ogni 4 ferri è la coppia dx/sx?. Grazie mille ancora

26.06.2016 - 16:03

DROPS Design answered:

Buongiorno Silvana. Gli aumenti sono sempre sul diritto del lavoro. Aumentare ogni 4 ferri, vuol dire aumentare su un ferro lavorato sul diritto del lavoro, lavora 3 ferri senza aumentare (un ferro sul rovescio, un ferro sul diritto, un ferro sul rovescio). Aumenta al ferro successivo sul diritto del lavoro, aumentando questa volta sempre alla sinistra dei segni. Buon lavoro!

26.06.2016 - 17:10

country flag Silvana wrote:

Meravigliosa tempestività!😃 Scusa avevo scritto di nuovo perché non avevo visto la risposta . Mille grazie e complimenti per il lavoro che fate.

26.06.2016 - 15:44

country flag Silvana wrote:

Continuo la domanda posta poco fa: oppure i 4 ferri li conto dopo avete fatto Una volta dx , 1 volta sx , 4 ferri senza aumenti e ricomincio? Con gli aumenti fatti sul dritto del lavoro..... Grazie mille

26.06.2016 - 15:40

DROPS Design answered:

Buongiorno Silvana. Può vedere la risposta che le abbiamo dato sotto. Buon lavoro!

26.06.2016 - 17:09

country flag Silvana wrote:

Continuo la domanda posta poco fa: oppure i 4 ferri li conto dopo avete fatto Una volta dx , 1 volta sx , 4 ferri senza aumenti e ricomincio? Con gli aumenti fatti sul dritto del lavoro..... Grazie mille

26.06.2016 - 15:40

DROPS Design answered:

Buongiorno Silvana. Gli aumenti sono sempre sul diritto del lavoro. Aumentare ogni 4 ferri, vuol dire aumentare su un ferro lavorato sul diritto del lavoro, lavora 3 ferri senza aumentare (un ferro sul rovescio, un ferro sul diritto, un ferro sul rovescio). Aumenta al ferro successivo sul diritto del lavoro. Buon lavoro!

26.06.2016 - 17:08

country flag Silvana wrote:

Buonasera. Sono arrivata ai primi aumenti dx/sx dei segna punti. Sono sul dritto del lavoro e aumento a dx. Il ferro successivo sono sul rovescio e NON aumento a sx giusto? In pratica gli aumenti sono sempre sul dritto del lavoro.? Quindi ogni 4 ferri è su ogni dritto del lavoro? Grazie attendo risposta

26.06.2016 - 14:41

DROPS Design answered:

Buongiorno Silvana. Gli aumenti sono sempre sul diritto del lavoro. Aumentare ogni 4 ferri, vuol dire aumentare su un ferro lavorato sul diritto del lavoro, lavora 3 ferri senza aumentare (un ferro sul rovescio, un ferro sul diritto, un ferro sul rovescio). Aumenta al ferro successivo sul diritto del lavoro. Buon lavoro!

26.06.2016 - 15:11

country flag Jet wrote:

Hallo, voor het eerst brei ik van boven naar beneden en aan één stuk: het prachtige patroon modelnr. bs-082. In het breien, vooral het meerderen, van de pas loop ik hier vast; meerder om de naald x keer, elke 4e nld x keer en elke 6e naald x keer. Wanneer en hoe vaak en hoe verdeeld ik dan moet meerderen begrijp ik niet. Want elke vierde is ook elke tweede evenals elke zesde. Toch? Ik hoop op jullie hulp want ik heb echt geen idee hoe ik verder moet.... Alvast Dank, Jet

04.05.2016 - 13:17

DROPS Design answered:

Hoi Jet. Je meerdert in de aangegeven naald in het patroon. Bijvoorbeeld maat S heb je 133 st en moet 18 st gelijkmatig verdeeld meerderen = 133/18 = 7,3, dus je meerdert ongeveer om de 7 st = 151 st op de nld, en in nld 11 meerder je 15 st gelijkmatig verdeeld = 151/15 = 10,06, dus circa om de 9-10 st meerderen enzovoort.

10.05.2016 - 15:55

country flag Jytte Christensen wrote:

Hej. Jeg er ved at lave cardigan sættet. Opskriften jeg har er fra Hjemmet uge 35 2015, svarende til denne cardigan. På størrelserne mangler jeg nogle centimeter mål, evt som bryst mål. Jeg har lavet en strikkeprøve og udfra den skulle jeg være en Small. Det passer dog ikke med alle de andre opskrifter jeg plejer at lave. Mvh Jytte Christensen

12.03.2016 - 18:52

DROPS Design answered:

Hej Jytte, Jo nederst i opskriften finder du målene på trøjen. De 41-45-50-55-60-66 som står over brystet er bredden og skal ganges med 2 for at få omkredsen af brystmålet. God fornøjelse!

14.03.2016 - 09:06

country flag MARTA PUENTE wrote:

Tengo la chaqueta acabada a falta de las mangas. La he tejido siguiendo las instrucciones de una talla M y ha quedado muy pequeña! La prueba de punto inicial era correcta cuando la hice

21.09.2015 - 18:19

DROPS Design answered:

Hola Marta, debajo del patrón tienes el diagrama con las medidas. Es recomendable ir comprobando que las medidas se van ajustando a nuestro trabajo porque mantener la tensión del tejido constante puede ser difícil. De todos modos se trata de una chaqueta corta y ajustada.

23.09.2015 - 09:04

country flag María wrote:

Buenos días En las explicaciones para finalizar pone: "Cuando el diagrama completo ha sido tejido verticalmente, tejer 2 hileras en pt jersey en el interior de los pts del borde". ¿Podrían explicarme a qué se refieren? Saludos y muchas gracias.

08.09.2015 - 07:29

DROPS Design answered:

Hola Maria. Se refiere a que después de completar los diagramas y antes de comenzar con la cenefa inferior hay que trabajar 2 filas en pt jersey y al mismo tiempo aumentar el número de pts según el patrón.

08.09.2015 - 11:12

country flag LOREDANA wrote:

Grazie! mi era sfuggito che il diagramma A2-A4 viene ripetuto ancora.... Un ringraziamento speciale per la pazienza! Loredana

16.07.2015 - 16:18