Forest Trails Cardigan |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa úr 4 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í perluprjóni með tvöföldum kanti í hálsmáli, laskalínu og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 244-3 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju á undan / eftir 4 lykkjur með prjónamerki í – síðan kallaðar laskalínulykkjur. Laskalínulykkjur eru prjónaðar brugðið frá réttu / slétt frá röngu. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn eins og útskýrt er að neðan, síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í A.1. Uppslátturinn er prjónaður frá röngu á undan og á eftir laskalínulykkjum: Á UNDAN laskalínulykkju: Prjónið uppsláttinn snúinn brugðið ef síðasta lykkja á undan uppslætti var prjónuð slétt, eða prjónið uppsláttinn snúinn slétt ef síðasta lykkja á undan uppslætti var prjónuð brugðið, það á ekki að myndast gat. Á EFTIR laskalínulykkju: Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, stingið inn vinstri prjóni í lykkjuna og setjið til baka yfir á vinstri prjón (uppslátturinn er snúinn), prjónið uppsláttinn brugðið ef prjóna á næstu lykkju slétt, eða prjónið uppsláttinn slétt ef prjóna á næstu lykkju brugðið, það á ekki að myndast gat. ÚTAUKNING (þegar aukið er út jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju til skiptis á undan og á eftir lykkju með prjónamerki í. Fækkið um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman eða 2 lykkjur brugðið saman eftir því hvernig síðasta / næsta lykkja er prjónuð í A.1. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu á eftir hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8½-9-7½-8-8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Síðan er prjónað hálsmál með stuttum umferðum fram og til baka á hringprjóna. Þegar hálsmálið hefur verið prjónað til loka, er afgangur af berustykki prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er kantur í hálsmáli brotinn niður og festur. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 69-73-75-79-81-87 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði DROPS Kid-Silk í hverjum lit (4 þræðir). Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka. Þegar kantur í hálsmáli mælist 5-5-5-6-6-6 cm, fitjið upp 6 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða fyrir kanta að framan = 81-85-87-91-93-99 lykkjur. Prjónið stroff eins og áður með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, en 7 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni (kantar að framan). Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist ca 10-10-10-12-12-12 cm – stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). ATH: Í stærð S, M, L og XXL er hvert prjónamerki sett í brugðna lykkju séð frá réttu, í stærð XL og XXXL er hver prjónamerki sett í slétta lykkju séð frá réttu – lykkjur með prjónamerki eru núna kallaðar laskalínulykkjur. Laskalínulykkjur eru prjónaðar brugðið frá réttu, slétt frá röngu. Teljið 14-14-16-17-16-19 lykkjur (framstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 17-17-15-17-19-17 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 15-19-21-19-19-23 lykkjur (bakstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 17-17-15-17-19-17 lykkjur (ermi), setið 4. prjónamerki í næstu lykkju. Það eru 14-14-16-17-16-19 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (framstykki). Prjónið 1 umferð slétt og fækkið jafnframt um 4-8-2-0-4-0 lykkjur jafnt yfir þannig: Prjónið eins og áður fram hjá 1. prjónamerki, fækkið um 2-2-0-0-2-0 lykkjur jafnt yfir á milli 1. og 2. prjónamerkis (ekki fækka lykkjum í laskalínulykkjum), fækkið um 0-4-2-0-0-0 lykkjur jafnt yfir á milli 2. og 3. prjónamerkis, fækkið um 2-2-0-0-2-0 lykkjur jafnt yfir á milli 3. og 4. prjónamerkis, prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 77-77-85-91-89-99 lykkjur í umferð. Það eru nú 15-15-15-17-17-17 lykkjur á milli 1. og 2. prjónamerkis og á milli 3. og 4. prjónamerkis (ermar) og 15-15-19-19-19-23 lykkjur á milli 2. og 3. prjónamerkis (bakstykki) HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjón 7. Nú er prjónað hálsmál með stuttum umferðum JAFNFRAMT því sem aukið er út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA. UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1, en munið eftir að 4 laskalínulykkjur eru alltaf prjónaðar slétt frá röngu / brugðið frá réttu. Prjónið þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá laskalínulykkju með 1. prjónamerki í (þ.e.a.s. í vinstri hlið í hálsmáli að framan, séð þegar flíkin er mátuð með réttuna út), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið A.1 og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 laskalínulykkjur – lesið útskýringu að ofan, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá laskalínulykkju með 4. prjónamerki (þ.e.a.s. í hægri hlið í hálsmáli að framan, séð þegar flíkin er mátuð = 8 lykkjur fleiri), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið A.1 þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var síðast við 1. prjónamerki, snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 4 (rétta): Prjónið A.1 og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalínulykkjur, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem síðast var snúið við 4. prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 5 (ranga): Prjónið A.1 þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem síðast var snúið við 1. prjónamerki, snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 6 (rétta): Prjónið A.1 og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalínulykkjur, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem síðast var snúið við 4. prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 7 (ranga): Prjónið A.1 út umferðina (lykkjur með prjónamerki í eru prjónaðar slétt frá röngu og kantar að framan eru prjónaðar í garðaprjóni). Stuttar umferðir hafa nú verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út 3 sinnum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalínulykkjur = 101-101-109-115-113-123 lykkjur. Prjónið síðan berustykki fram og til baka yfir allar lykkjur frá miðju að framan eins og útskýrt er að neðan. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – lesið útskýringu að ofan. BERUSTYKKI: Haldið áfram með A.1 fram og til baka með 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og laskalínulykkjur sem prjónaðar eru brugðið frá réttu / slétt frá röngu JAFNFRAMT heldur útaukning áfram fyrir laskalínu þannig: Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu), en í annarri hverri umferð sem er aukið út, er einungis aukið út á framstykkjum / bakstykki. Þ.e.a.s. það er aukið út á framstykkjum / bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð (aukið er út til skiptis 4 og 8 lykkjur). Aukið svona út 12-14-18-18-20-20 sinnum á framstykkjum / bakstykki og 6-7-9-9-10-10 sinnum á ermum = 173-185-217-223-233-243 lykkjur. Útaukning fyrir ermar er nú lokið. Haldið áfram með útaukningu á framstykkjum / bakstykki 4-4-0-1-2-3 sinnum til viðbótar = 189-201-217-227-241-255 lykkjur. Útaukning fyrir framstykki / bakstykki er nú lokið. Prjónið áfram án útaukninga þar til stykkið mælist 19-21-22-22-25-26 cm, mælt eftir stroffi mitt að aftan. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 34-36-38-40-42-46 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 33-35-39-41-43-43 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-7-9-11-13 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 55-59-63-65-71-77 lykkjur í A.1 eins og áður (bakstykki), setjið næstu 33-35-39-41-43-43 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-7-9-11-13 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 34-36-38-40-42-46 lykkjur eins og áður (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 137-145-153-163-177-195 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju af 7-7-7-9-11-13 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – prjónamerkin eru notuð þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið. Haldið áfram með A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur með 7 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 21-21-22-23-22-23 cm frá skiptingu, skiptist fram- og bakstykkið við bæði prjónamerkin og hvert stykki er prjónað til loka hvert fyrir sig. Lykkjur með prjónamerki tilheyra framstykkjum. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 38-40-42-44-48-52 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 9-9-9-11-11-13 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 47-49-51-55-59-65 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig (frá hlið): 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Fellið af. Notið e.t.v. ítalska affellingu – sjá myndband að neðan undir Skýringar & Aðstoð á heimasíðunni okkar. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. HÆGRA FRAMSTYKKI. = 38-40-42-44-48-52 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 9-9-9-11-11-13 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 47-49-51-55-59-65 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig (frá miðju að framan): 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Fellið af á sama hátt og á vinstra framstykki. BAKSTYKKI: = 61-65-69-75-81-91 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 18-20-20-20-24-24 lykkjur jafnt yfir = 79-85-89-95-105-115 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjón, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju í garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Fellið af á sama hátt og á framstykkjum. ERMI: Setjið 33-35-39-41-43-43 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða á hringprjóna 7. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 7-7-7-9-11-13 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 40-42-46-50-54-56 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju af 7-7-7-9-11-13 lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og haldið áfram með A.1 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar ermin mælist 4-4-4-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju á undan prjónamerki – lesið ÚRTAKA. Þegar stykkið mælist 12-12-8-6½-5-5 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju á eftir prjónamerki – munið eftir ÚRTAKA. Haldið áfram með úrtöku til skiptis á undan og á eftir prjónamerki með 8-8-4-3-2-2 cm millibili alls 4-4-8-10-14-14 sinnum (2-2-4-5-7-7 sinnum á undan prjónamerki og 2-2-4-5-7-7 sinnum á eftir prjónamerki) = 36-38-38-40-40-42 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 37-35-35-36-34-32 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14-14-16-16-18-18 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Prjónið stroffprjón hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 10 cm. Fellið af. Notið e.t.v. ítalska affellingu. Ermin mælist ca 47-45-45-46-44-42 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið það niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan í köntum að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (4)
Pierrette skrifaði:
Existe-il l'explication en commençant par le bas.? ma fille m'a donné sa laine Duvetine de chez Bergere de France qui se tricote en 6/5 (Jersez) diagrame 12 m/17 rg. Avez vous un catalogue de fils, je réside a la frontière Espagnole! j'aime beaucoup vos modèles..Merci pour votre réponse ! Cordialement . Mme Perreau
25.03.2024 - 15:20DROPS Design svaraði:
Bonjour Pierrette, ce gilet se tricote de haut en bas, en allers et retours sur aiguille circulaire. On va augmenter pour le raglan, puis diviser l'ouvrage et terminer le bas du gilet (en allers et retours) et les manches (en rond) séparément. Retrouvez ici tous nos modèles de gilets et vestes tricotés de bas en haut, ajoutez des filtres pour affiner votre recherche. Bon tricot!
02.04.2024 - 09:40Jutta skrifaði:
For the knitting gage which needle size is used, 7 mm or 5.5?
28.01.2024 - 23:13DROPS Design svaraði:
Dear Jutta, the gauge is worked with the same needle that will be used for the specified pattern. The 5.5mm needles are only for the rib. A.1 is worked with the 7mm needles, so you will need to work the gauge with the 7mm needles. Happy knitting!
28.01.2024 - 23:23Birgit skrifaði:
Hallo Drops-Team, Beim Stricken (Größe M) des Ärmels sind laut Anleitung von 42 Maschen schrittweise 6 Maschen abzunehmen, es bleiben 38 Maschen übrig. Lese ich die Anleitung falsch oder hat sich ein Fehler eingeschlichen? Sollen insgesamt nur 4 Maschen abgenommen werden oder bleiben 36 übrig? Hat das Auswirkungen auf die Anzahl von Maschen (14), die fürs Bündchen zugenommen werden? VG, Birgit
31.10.2023 - 20:11DROPS Design svaraði:
Liebe Birgit, es wird jeweils nur 1 Masche abgenommen, das erste Mal am Ende der Runde (vor der Markierung), das 2. Mal nach der Markierung (am Anfang der Runde) und noch 2 Mal so - so haben Sie 42 M - 4 M abgenommen = sind dann 38 Maschen übrig. Viel Spaß beim stricken!
01.11.2023 - 15:03Asnate skrifaði:
Will try this cardigan! With nepal & air yarns ( I had them at home waiting for an autumn project) First time trying something with buttons :)
31.08.2023 - 16:38