DROPS Cotton Light uni colour 50% Bómull, 50% Polyester |
396.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Change language:
Íslenska#whitepeonydress
DROPS Design: Mynstur cl-122
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Cotton Light uni colour 50% Bómull, 50% Polyester 396.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= prjónið slétt | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat |
|
= 2 lykkjur slétt saman |
|
= 3 lykkjur slétt saman | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð |
|
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
White Peony |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll úr DROPS Cotton Light. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með öldumynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 232-12 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. GARÐAPRJÓN Í RÖNDUM: Þegar stykkið mælist 16-16-17-17-18-18 cm (mælt frá neðsta horni/blúndu), prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur jafnframt því sem mynstur er prjónað eins og áður, þ.e.a.s. prjónið 1 umferð með mynstri eins og útskýrt er í mynsturteikningu, prjónið næstu umferð brugðið yfir allar lykkjur í stað slétt eins og útskýrt er í mynsturteikningu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið), prjónið 1 umferð mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu, prjónið næstu umferð brugðið yfir allar lykkjur í stað slétt eins og útskýrt er í mynsturteikningu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið). Endurtakið þessar 4 umferðir í garðaprjóni þegar stykkið mælist: 26-26-27-28-29-29 cm, 30-30-31-33-34-34 cm, 46-46-48-50-52-52 cm, 56-56-58-61-63-63 cm, 60-60-63-66-68-68 cm. ÚTAUKNING: AUKIÐ ÚT Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn. AUKIÐ ÚT HVORU MEGIN VIÐ PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni (prjónamerki situr mitt í þessum 4 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. AUKIÐ ÚT Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt saman. FÆKKIÐ LYKKJUM Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur garðaprjón. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp þar til pilsið hefur verið prjónað til loka. Síðan er berustykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna frá hlið. Stykkið er saumað saman í hlið og hlýrar / bönd er saumað að bakstykki. PILS: Fitjið upp aðeins laust 252-288-324-360-396-432 lykkjur á hringprjóna 4 með DROPS Cotton Light. Prjónið A.1 alls 7-8-9-10-11-12 sinnum hringinn á pilsi – ATH: Í 2. umferð í A.1 þegar A.1 hefur verið prjónað í fyrsta skipti á hæðina, prjónið brugðið yfir allar lykkjur – uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið til að koma í veg fyrir göt. Þegar 2 fyrstu umferðir í A.1 hafa verið prjónaðar til loka, skiptið yfir á hringprjón 3,5. Endurtakið síðan 2 fyrstu umferðir í A.1 á hæðina, eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-16-17-17-18-18 cm (mælt frá neðsta horni/blúndu), prjónið GARÐAPRJÓN Í RÖNDUM – sjá útskýringu að ofan. Rendur eru endurteknar eins og útskýrt er að ofan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 28-29-30-30-31-32 cm (mælt frá neðsta horni/blúndu), byrjar úrtaka á pilsi eins og útskýrt er að neðan. Fækkað er um 14-16-18-20-22-24 lykkjur eins og útskýrt er í mynsturteikningu, hvert skipti sem lykkjum er fækkað. Öldumynstrið kemur nú til með að verða minna í hvert skipti sem lykkjum er fækkað. Fækkið lykkjum þannig: Prjónið 2 síðustu umferðir í A.1 = 238-272-306-340-374-408 lykkjur. Prjónið síðan A.2, þ.e.a.s. endurtakið 2 fyrstu umferðir í A.2 á hæðina. Þegar stykkið mælist 34-35-36-36-37-38 cm, prjónið 2 síðustu umferðir í A.2 = 224-256-288-320-352-384 lykkjur. Prjónið síðan A.3, þ.e.a.s. endurtakið 2 fyrstu umferðir í A.3 á hæðina. Þegar stykkið mælist 39-40-41-41-42-43 cm, prjónið 2 síðustu umferðir í A.3 = 210-240-270-300-330-360 lykkjur. Prjónið síðan A.4, þ.e.a.s. endurtakið 2 fyrstu umferðir í A.4 á hæðina. Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm, prjónið 2 síðustu umferðir í A.4 = 196-224-252-280-308-336 lykkjur. Prjónið síðan A.5, þ.e.a.s. endurtakið 2 fyrstu umferðir í A.5 á hæðina. Þegar stykkið mælist 49-50-52-53-54-55 cm, prjónið síðustu 2 umferðir í A.5 = 182-208-234-260-286-312 lykkjur. Prjónið síðan A.6, þ.e.a.s. endurtakið 2 fyrstu umferðir í A.6 á hæðina. Þegar stykkið mælist 53-54-56-57-59-60 cm, prjónið 2 síðustu umferðir í A.6 = 168-192-216-240-264-288 lykkjur. Prjónið síðan A.7. Þegar stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-8-12-12-8-4 lykkjur jafnt yfir = 164-184-204-228-256-284 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 82-92-102-114-128-142 lykkjur (í hlið á berustykki). Byrjið við byrjun á umferð og prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 2 cm, aukið út um 1 lykkju í byrjun á umferð, 1 lykkja hvoru megin við prjónamerki og 1 lykkja í lok umferðar – sjá ÚTAUKNING (4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 1½-1½-2-2-2-2 cm millibili alls 5-5-4-4-4-4 sinnum = 184-204-220-244-272-300 lykkjur. Þegar stykkið mælist 10 cm frá prjónamerki, fellið af fyrir handveg þannig: Fellið af 3-4-5-6-7-8 lykkjur, prjónið 86-94-100-110-122-134 lykkjur eins og áður og setjið þessar lykkjur á þráð eða hjálparprjón fyrir framstykki, fellið af 6-8-10-12-14-16 lykkjur, prjónið eins og áður út umferðina. Snúið stykkinu, fellið af 3-4-5-6-7-8 lykkjur = 86-94-100-110-122-134 lykkjur á bakstykki, prjónið áfram eins og áður út umferðina. Prjónið síðan bakstykki og framstykki til loka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 86-94-100-110-122-134 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka á hringprjóna 3. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 11-10-10-8-6-0 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 0-4-5-11-17-28 sinnum = 64-66-70-72-76-78 lykkjur. Prjónið áfram þar til berustykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm frá prjónamerki. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. FRAMSTYKKI: = 86-94-100-110-122-134 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka á hringprjóna 3. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir handveg alveg eins og á bakstykki = 64-66-70-72-76-78 lykkjur. Prjónið áfram þar til berustykkið mælist 19-20-20-21-22-22 cm frá prjónamerki. Í næstu umferð frá réttu er fellt af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið 11-11-13-13-15-15 lykkjur í garðaprjóni og setjið þessar lykkjur á þráð eða hjálparprjón fyrir hlýra / band, fellið af 42-44-44-46-46-48 lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið síðustu 11-11-13-13-15-15 lykkjur í garðaprjóni fyrir hlýra / band. Prjónið síðan hlýra / band eins og útskýrt er að neðan. HLÝRI / BAND: = 11-11-13-13-15-15 lykkjur. Prjónið garðaprjón fram og til baka á hringprjón 3 þar til hlýrinn / bandið mælist ca 13-13-14-14-14-15 cm frá úrtöku fyrir hálsmáli. Það á að sauma hlýrann / bandið við bakstykkið. Mátið e.t.v. kjólinn og stillið lengdina af. Fellið af. Prjónið hinn hlýrann / bandið á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsaum á berustykki í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur. Saumið hlýrann / böndin við bakstykkið – yst í hvora hlið. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 309 vörulista og 11624 mynstur - 7136 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (23)
Audrey skrifaði:
Hallo liebes Team von Drops Design. Ich bin bei dem Kleid jetzt bei der Passe angekommen und verstehe nicht ganz wie ich arbeiten muss. Der Rock wurde ja in runden gearbeitet und jetzt heißt es auf einmal hin und Rück Reihe.. muss ich die eine Hälfte der Passe stilllegen, erst den Rückenteil stricken und dann die Seite wechseln zum Vorderteil?
24.07.2024 - 12:11DROPS Design svaraði:
Liebe Audrey, Sie stricken die Passe tatsächlich hin und zurück, legen aber keine Maschen still - die Passe ist an der einen Seite zunächst offen und wird dann am Ende zusammengenäht. Das Vorderteil und das Rückenteil werden erst später einzeln weitergearbeitet (nach dem Abketten für die Armausschnitte). Viel Spaß beim Weiterstricken!
26.07.2024 - 22:51Carmen skrifaði:
En espalda cuando se ve disminuciones, hay una indicación que dice = 64-66-70-72-76-78 veces, creo que quiere decir = que quedan puntos . Gracias.
11.06.2024 - 11:15Marita Lindqvist skrifaði:
Hej Jag har samma problem som Kari. Får inte maskorna att stämma när jag ska sticka 2 första varven efter att jag har stickat hela A1 en gång.
21.05.2024 - 16:17DROPS Design svaraði:
Hej Marita, det er de 2 første omgange i A.1 du gentager, du strikker først de 2 sidste omgange når du skal begynde at tage ind :)
23.05.2024 - 11:32Maria Lund-Hansen skrifaði:
I mönstret diagram är det "hål", dvs rutor som är tomma. Vad är det meningen att jag ska göra där? Mvh Maria
10.04.2024 - 12:56DROPS Design svaraði:
Hej Maria, det er når masken er minskat på varvet innan :)
10.04.2024 - 14:09Marianna skrifaði:
Hello, Just a quick comment: in the descriptive paragraph on your website and on Ravelry, the pattern is "worked top-down". Yet, within the pattern it is described as being "worked bottom up". P.S. It is a lovely design, though. 🙂
27.07.2023 - 21:46DROPS Design svaraði:
Dear Marianna, thanks for noticing, title has now been fixed :) Happy knitting!
28.07.2023 - 09:34Monica skrifaði:
I mønster A1 runde 3 (der det felles 3 rette sammen) ! Der felles det 6 masker men økes kun 4. når jeg begynner på runde en igjen passer det ikke med maske antall da jeg kun har 34 m på pinnen (i rapprten)og det skal være 36
26.06.2023 - 08:23DROPS Design svaraði:
Hei Monica. Husk det er bare de 2 første omgangene i A.1 om gjentas i høyden (36 masker) til arbeidet måler 28-29-30-30-31-32 cm, så strikkes de 2 siste omgangene i A.1 (= 34 masker pr gang diagrammet strikkes i bredden). Dette gjelder også når du strikkes de andre diagrammene. mvh DROPS Design
26.06.2023 - 12:03Karin skrifaði:
Kan man göra klänningen något längre?
21.05.2023 - 21:21DROPS Design svaraði:
Hei Karin. Det kan du fint gjøre, om du har nok garn. Siden den er strikket nedenifra og opp må du bestemme deg hvilket stykke du vil forlenge og hvor du vil minke masker, slik at du har det riktige maskeantallet når bærestykket skal strikkes. mvh DROPS Design
22.05.2023 - 14:08Krisztina skrifaði:
Hej Jag undrar om det är rätt så att när man stickar kjolen alltså mönster A1 då alla omslag ska stickas vridet att det inte blir hål. Men när jag tittar på bilderna på klänningen ser jag att det är hål. Så hur är det rätt då?
17.06.2022 - 21:12DROPS Design svaraði:
Hei Krisztina. Kjolen har ikke hullmønster, men et strukturmønster. Kanskje noen vil mene det er små hull, men om du strikker en liten prøvelapp (med et av diagrammene) før du starter på kjolen vil du se hvordan mønstret vil bli. mvh DROPS Design
20.06.2022 - 13:35Kari Nilsen skrifaði:
Jeg skjønner ikke 2. omg i mønsteret A1. Der blir det mindre masker på omgangen så da passer ikke mønsteret når jeg begynner på 1. omg igjen.
03.05.2022 - 20:40DROPS Design svaraði:
Hei Kari, I A.1 har du 4 økte masker (4 kast) og 4 fellet masker (2 ganger hvor du strikker 2 masker rett sammen, og 2 ganger hvor du tar en maske løs av pinnen, osv.). Det betyr at antall masker ikke endrer seg på omgangen. God fornøyelse!
04.05.2022 - 07:50Maria Jnaon skrifaði:
Varför inte fotografera modellerna även bakifrån? Att som i detta fall titta på modellen/klänningen i fyra bilder med i princip samma pose på fotomodellen o inte någon bakifrån så man ser hur den ser ut, blir rätt meningslöst. Har noterat frånvaro av "baksidor" i många av era mönster.
08.03.2022 - 17:14