Open Country |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Heklaður kjóll með áferðamynstri úr DROPS Cotton Merino. Stærð S - XXXL.
DROPS 220-5 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning A.2 sýnir hvernig umferðin byrjar/endar þegar heklað er í hring. HEKLLEIÐBEININGAR – Á við um þegar heklað er fram og til baka: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er byrjað með 1 loftlykkju (þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju). Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er byrjað með 3 loftlykkjur (þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls). Endið umferð með 1 stuðli og í 3. loftlykkju, þessi stuðull er heklaður til að mynstrið verði alveg eins í hvorri hlið og hoppað er yfir í næstu umferð. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. ÚRTAKA-1: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul í næsta stuðul, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er hann dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri). ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku fyrir handveg): Fækkið lykkjum alltaf með því að hekla 2 og 2 stuðla saman – munið eftir ÚRTAKA-1. Í 5. og 6. umferð í A.1 er þess vegna heklaður 1 stuðull í hvern stuðul frá umferðinni að neðan yfir lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í heilli mynstureiningu af A.1 (1 mynstureining A.1 = 3 lykkjur á breidd). ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til að reikna út hvernig fækka/fjölda á lykkjum jafnt yfir, teljið fjölda lykkja (t.d. 156 lykkjur) og deilið með fjölda úrtöku/útaukningu sem á að gera (t.d. 6) = 26. Í þessu dæmi eru heklaðar 25. og 26. hver lykkja saman. Ef auka á út er í þessu dæmi heklaðar 2 lykkjur í 26. hverja lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Það er 10 cm klauf neðst á kjólnum, stykkið er fyrst heklað fram og til baka í 2 stykkjum þar til klaufin hefur verið hekluð til loka, síðan er stykkið heklað í hring, en snúið er við í hverri umferð og heklað er fram og til baka í umferð til að áferðin verði alveg eins allan tímann. Þegar stykkinu er skipt upp við handveg er áfram heklað fram og til baka. Að lokum er heklaður skrautkantur í kringum hálsmál og handveg. FRAMSTYKKI: Heklið 78-84-90-96-108-120 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA með Cotton Merino með heklunál 4. Snúið stykkinu og heklið til baka þannig: Heklið 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR = 78-84-90-96-108-120 fastalykkjur. Snúið og heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju til baka. Heklið síðan eftir mynsturteikningu A.1. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Eftir ca 10 cm er stykkið lagt til hliðar og bakstykkið er heklað, stillið af að síðasta umferð sem er hekluð sé 2., 4. eða 6. umferð í mynsturteikningu, þetta er mikilvægt til að mynstrið verði rétt frá réttu þegar heklað er í hring. BAKSTYKKI: Heklið 78-84-90-96-108-120 loftlykkjur með Cotton Merino með heklunál 4. Snúið og heklið til baka þannig: Heklið 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 78-84-90-96-108-120 fastalykkjur. Snúið og heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju til baka. Heklið síðan eftir mynsturteikningu A.1. Haldið áfram þar til stykkið mælist 10 cm – endið í sömu umferð og á framstykki. KJÓLL eftir klauf: Haldið áfram með mynstur – heklið fyrst lykkjur frá réttu yfir framstykki, síðan eru lykkjur heklaðar frá réttu yfir bakstykki, að lokum er umferðin hekluð saman með keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, heklið loftlykkjur í A.2, snúið stykkinu og heklið til baka frá röngu. Stykkið er síðan heklað í hring, en stykkinu er snúið í hverri umferð, þannig að heklað er bæði frá réttu og frá röngu. Þetta er gert til að mynstrið verði alveg eins í öllu stykkinu. Setjið 1 prjónamerki í skiptinguna á milli framstykkis og bakstykkis = hliðar. Haldið svona áfram fram og til baka með mynstur eftir mynsturteikningu A.1 og A.2 = 156-168-180-192-216-240 lykkjur í umferð (A.2 er ekki talið með í lykkjufjölda). Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm – stillið af að næsta umferð sé 1., 2., eða 3. Umferð í mynsturteikningu, fækkið um 6 stuðla jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 og ÚRTAKA/ÚTAUKNING. Fækkið lykkjum svona í hvert skipti sem 1., 2. og 3. umferð er hekluð, fækkið lykkjum alls 6 sinnum = 120-132-144-156-180-204 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm – stillið af að næsta umferð sé 1., 2. eða 3. umferð í A.1. Aukið nú út 6 stuðla jafnt yfir í umferð með því að hekla 2 stuðla í 1 stuðul. Aukið svona út í hvert skipti sem 1. og 3. umferð er hekluð, aukið út alls 4 sinnum – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 144-156-168-180-204-228 lykkjur. Haldið áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 62-63-64-65-66-67 cm, skiptið stykkinu fyrir framstykki og bakstykki við handveg, stillið af að næsta umferð sem á að hekla sé 1., 2. eða 3. umferð. FRAMSTYKKI: Heklið keðjulykkjur yfir fyrstu 4-5-4-5-6-7 lykkjur, heklið síðan fram þar til eftir eru 4-5-4-5-6-7 stuðlar á undan prjónamerki í hinni hliðinni, snúið stykkinu. Í næstu umferð byrjar úrtaka fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-2. Heklið 4 ystu lykkjurnar í hvorri hlið saman 2 og 2. Endurtakið úrtöku í hverri umferð 0-0-1-1-2-3 sinnum til viðbótar. Í næstu umferð eru 2 ystu lykkjurnar heklaðar saman, endurtakið úrtöku í hverri umferð 4-4-4-5-6-7 sinnum til viðbótar. Eftir alla úrtöku eru 50-54-58-60-64-68 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 70-71-73-74-76-77 cm, heklið hvora öxl til loka fyrir sig – stillið af að næsta umferð sé hekluð frá réttu. Stykkið er nú heklað til loka með 1 stuðli í hvern stuðul, mynstrið er ekki lengur heklað eftir A.1. ÖXL: Haldið áfram með stuðla yfir fyrstu 15-17-19-20-21-22 lykkjur frá réttu, snúið og heklið 4 fyrstu lykkjur saman 2 og 2 fyrir hálsmáli, síðan er heklað út umferðina. Snúið og heklið fram þar til 4 lykkjur eru eftir á undan hálsmáli, heklið þær saman 2 og 2, snúið. Í næstu umferð eru 2 fyrstu lykkjur heklaðar saman, síðan er heklað út umferðina. Snúið, heklið þar til 2 lykkjur eru eftir, heklið þær saman. Snúið, heklið 2 fyrstu lykkjur saman, heklið út umferðina = 8-10-12-13-14-15 stuðlar eftir á öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 80-82-84-86-88-90 cm, klippið þráðinn. Heklið hina öxlina alveg eins, nema spegilmynd. Þ.e.a.s: Byrjið frá réttu, úrtaka er gerð í lok umferðar frá röngu og byrjun á umferð frá réttu. BAKSTYKKI: Heklið á sama hátt og framstykki. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma kant í kant þannig að ekki myndist þykkur saumur. SKRAUTKANTUR: Skrautkanturinn er heklaður í kringum hálsmál, hvorn handveg og í kringum fram- og bakstykki neðst - einnig upp og niður meðfram hvorri klauf. Skrautkanturinn er heklaður með heklunál 4 með Cotton Merino þannig: 1 fastalykkja, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 3. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið fram ca 1 cm og heklið 1 fastalykkju *. Heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju frá byrjun á umferð. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (23)
Tonya Tzianakaki skrifaði:
Do you have this in written form? I struggle with reading graphs. Cant determine how many rows from bottom to top, where I repeat and change to rounds. Thank you so much. 😊
21.04.2024 - 22:13DROPS Design svaraði:
Dear Tonya, we are sorry, but we don't have this pattern written out, not only because our patterns are available in many languages, but also, because we believe that with diagrams you can see the "whole picture", in other words, not only the very next stitch, but also how rows and stitches relate to each other.HERE we have a lesson on how to read crochet diagrams, and also, you can ask for help (either in person or over the phone) in the store you bought your DROPS yarn from. Happy Crafting!
21.04.2024 - 23:16Kris Meys skrifaði:
Mooi kleedje, ga ik nu maken!!
29.03.2023 - 14:20Lizzy skrifaði:
Sigh. I need to know if there is any way i can drop 10 Treble stitches from each side. Although I did the swatch and am using 3.0 mm hook (v recommended 4.0) i realized after 4 rows beyond the join / vent it now is 12 mm too wide on front and on back. Now when I measure 17 TR stitches on the dress it is 12 mm not 10 mm so the width apparently was growing 2 mm every 17. I know this is my issue not the pattern but am unsure even if i start again if it will work.
15.01.2023 - 14:32DROPS Design svaraði:
Dear Lizzy, try to keep the correct tension in width to ensure the correct width while working - but also make sure you are following appropriate English pattern - you should have double crochets (US-English) or treble crochets (UK-English). Happy crocheting!
16.01.2023 - 09:27Elizabeth Hahn skrifaði:
I want to make sure 'then work round together with a slip stitch in 3rd chain stitch at the beginning of round, work chain stitches in A.2, turn piece and work back from wrong side. Continue piece in the round, but turn piece for every round to work from both right side and wrong side. ' Only means I attach the front to the back on one side. not both and work all the way around ( it keeps saying this is a comment so i resent as a question)
14.01.2023 - 14:51DROPS Design svaraði:
Dear Elizabeth, you join the beginning of the round (of the front) to the end of the back and work all the round. When you reach the end of the round, turn the piece and work the next round on the wrong side. This is necessary so that the texture of the front and back, which had been worked back and forth, matches the body worked in the round. Happy crocheting!
15.01.2023 - 12:30Lizzy skrifaði:
I want to make sure 'then work round together with a slip stitch in 3rd chain stitch at the beginning of round, work chain stitches in A.2, turn piece and work back from wrong side. Continue piece in the round, but turn piece for every round to work from both right side and wrong side. ' Only means I attach the front to the back on one side. not both and work all the way around
14.01.2023 - 14:50DROPS Design svaraði:
Dear Lizzy, you join the beginning of the round (of the front) to the end of the back and work all the round. When you reach the end of the round, turn the piece and work the next round on the wrong side. This is necessary so that the texture of the front and back, which had been worked back and forth, matches the body worked in the round. Happy crocheting!
15.01.2023 - 12:30Lizzy skrifaði:
I want to make sure 'then work round together with a slip stitch in 3rd chain stitch at the beginning of round, work chain stitches in A.2, turn piece and work back from wrong side. Continue piece in the round, but turn piece for every round to work from both right side and wrong side. ' Only means I attach the front to the back on one side. not both and work all the way around
14.01.2023 - 14:49Lizzy skrifaði:
I am starting Open Country Drops Dress. It is treble crochet. The swatch says 17 treble crochet stitches wide and 9 rows vertically will be 10 x 10 cm or 4 x 4. My first swatch was with 4.0 and way to long. I moved to 3.0 and still the treble crochet stitch are too tall. I am unsure how you can have one treble crochet stitch only 1.1 CM high? What am i missing ?
13.01.2023 - 13:26DROPS Design svaraði:
Dear Lizzy, make sure you are reading the appropriate English pattern because UK- and US-crochet terminology are different, so that 1 treble crochet in UK-English is 1 double crochet in US-English - this might help. Happy crocheting!
13.01.2023 - 15:19Tereza skrifaði:
Moc hezké šaty.
10.05.2021 - 13:36Marianne Skoú skrifaði:
Jeg forstår ikke at læse måleskitsen. 😢
28.04.2021 - 23:16DROPS Design svaraði:
Hej Marianne. Kanske detta kan vara till hjälp. Mvh DROPS Design
29.04.2021 - 13:46Marianne Skoú skrifaði:
Hvor finder jeg en str. guide, hofte, bryst osv. ?? 🤔
27.04.2021 - 12:01DROPS Design svaraði:
Hej Marianne, Du finder kjolens mål i de forskellige størrelser i måleskitsen, som ligger nederst i opskriften. God fornøjelse!
28.04.2021 - 13:27