Dancing Diamonds |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Baby Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti, gatamynstri og ¾-löngum ermum. Stærð S – XXXL.
DROPS 221-7 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 14 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 5) = 2,8. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca aðra hverja og 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚTAUKNING-3 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 3-3-3-4-4-4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6-6-6-8-8-8 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 4-4-4-5-5-5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4-4-4-6-6-6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. eða 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 114-114-126-140-146-146 lykkjur á hringprjón 2,5 með Baby Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S, M og L: Prjónið * 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið * yfir næstu 12-12-15 lykkjur, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið (= ½ bakstykki), prjónið A.1a (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 27-27-27 lykkjur (= hægri öxl), prjónið 1 lykkju brugðið, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 27-27-33 lykkjur, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið (= framstykki), prjónið A.1a yfir næstu 27-27-27 lykkjur (= vinstri öxl), prjónið 1 lykkju brugðið, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 15-15-18 lykkjur. Haldið svona áfram með stroff hringinn í 2 cm (A.1a er endurtekið á hæðina). Stærð XL, XXL og XXXL: Prjónið * 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið * yfir næstu 18-18-18 lykkjur, 1 lykkja slétt (= ½ bakstykki), prjónið A.1a (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 33-33-33 lykkjur (= hægri öxl), * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 36-39-39 lykkjur, 1 lykkja slétt, (= framstykki), prjónið A.1a yfir næstu 33-33-33 lykkjur (= vinstri öxl), prjónið * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 18-21-21 lykkjur. Haldið svona áfram með stroff hringinn í 2 cm (A.1a er endurtekið á hæðina). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 14-14-17-19-19-19 lykkjur og aukið jafnframt út 5-7-5-7-9-9 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1, prjónið mynstur A.1a eins og áður yfir næstu 27-27-27-33-33-33 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 30-30-36-37-40-40 lykkjur og aukið jafnframt út 10-14-10-15-18-18 lykkjur jafnt yfir, prjónið mynstur A.1a eins og áður yfir næstu 27-27-27-33-33-33 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 16-16-19-18-21-21 lykkjur og aukið jafnframt út 5-7-5-8-9-9 lykkjur jafnt yfir = 134-142-146-170-182-182 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. BERUSTYKKI: Setjið eitt prjónamerki eftir 66-70-72-86-90-90 lykkjur (= ca mitt að framan) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti. Fyrsta prjónamerki: Byrjið mitt að aftan, teljið 19-21-22-26-28-28 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju. Annað prjónamerki: Teljið 27-27-27-33-33-33 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 40-44-46-52-58-58 lykkjur frá 2. prjónamerki (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 27-27-27-33-33-33 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 21-23-24-26-30-30 lykkjur eftir fyrir ½ bakstykki á eftir 4. prjónamerki. Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu. Það á að auka út við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Lestu allan kaflann áður en þú prjónar! Stykkið er prjónað áfram í A.1b yfir A.1a, og sléttprjóni á framstykki og bakstykki. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Haldið svona áfram með mynstur og aukið jafnframt út í hverri umferð alls 22-22-27-27-29-32 sinnum = 222-230-254-278-298-310 lykkjur (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 7-7-8-8-9-10 cm frá prjónamerki við hálsmál. Aukið síðan út ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Prjónið áfram í mynstri eins og áður. JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-2. Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í sléttprjón. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 18-19-18-19-18-16 sinnum = 294-306-326-354-370-374 lykkjur. Stykkið mælist ca 18-19-19-20-20-20 cm frá prjónamerki við hálsmál. Aukið síðan út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI: Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjunum sitja í ystu lykkjunni í hvorri hlið á hvorri ermi. Nú eru 61-63-61-69-67-63 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi. Í næstu umferð er aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverri af 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING-2. Lykkjur eru nú auknar út á framstykki, bakstykki og báðum ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 1-4-4-5-7-9 sinnum = 302-338-358-394-426-446 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, mælist stykkið ca 18-20-22-23-25-27 cm frá prjónamerki við hálsmál. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið áfram eins og áður án útaukninga að réttu máli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið yfir fyrstu 42-47-50-56-61-65 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið næstu 65-73-77-85-89-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-16-18-20-22 lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 86-96-102-112-124-132 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 65-73-77-85-89-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-16-18-20-22 lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 44-49-52-56-63-67 lykkjur (= ½ bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 196-216-236-260-288-308 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýju lykkjuna sem fitjuð var upp í hlið undir ermi (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 98-108-118-130-144-154 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki og framstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út lykjum og fækka í hliðum. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með ca 1½ cm millibili alls 5-5-5-5-5-5 sinnum = 176-196-216-240-268-288 lykkjur. Þegar stykkið mælist 11 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorir hlið – sjá ÚTAUKNING-3 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í hverjum cm alls 9-9-9-8-8-8 sinnum = 212-232-252-272-300-320 lykkjur. Þegar stykkið mælist 20 cm í öllum stærðum (mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli), aukið út um 13-14-15-16-18-19 lykkjur jafnt yfir = 225-246-267-288-318-339 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff (= 1 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 65-73-77-85-89-91 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 3. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 12-12-16-18-20-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 77-85-93-103-109-113 lykkjur. Setjið prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Prjónið mynstur eins og áður yfir miðju 27-27-27-33-33-33 lykkjur á ermi. Aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 3-3-3-3-2-2 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 6-9-12-14-15-15 sinnum = 65-67-69-75-79-83 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 24-23-21-20-18-17 cm frá skiptingu, aukið út 2-3-4-4-3-5 lykkjur jafnt yfir lykkjur í sléttprjóni (lykkjur yfir A.1b eru prjónaðar eins og áður) = 67-70-73-79-82-88 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið nú A.1a yfir A.1b og yfir þær lykkjur sem eru eftir er prjónaðar í stroffprjóni (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 27-26-24-23-21-20 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (22)
Daniela wrote:
Hallo liebes Team, es gibt in der Anleitung einen Rechenfehler. Schlage ich für die Halsblende 126 Maschen bei Größe L an und verteile die nachher auf je 27 Maschen für die Ärmel, 33 Maschen für das Vorderteil und 15+18 Maschen für je ein halbes Rückenteil, sind das 120 Maschen. liebe Grüße
24.02.2024 - 05:17Conni wrote:
Man kan ikke vælge alternativt garn, det virker ikke har prøvet i flere dage Mvh Conni
07.10.2023 - 14:54Mme Soares wrote:
Que veut dire répéter au dessus des 12 premières mailles pour les tailles S M L il est écrit 1 m endroit 2 m envers répéter de *-* au dessus des 12-12-15 premières mailles
25.05.2023 - 20:50DROPS Design answered:
Bonjour Mme Soares, vous tricotez 4 fois *1 m endroit, 2 m envers*, soit 12 mailles au total en côtes 1m end/2 m env. Bon tricot!
26.05.2023 - 10:03Luísa Seabra wrote:
Sorry I´m wrong. It´s like you say.
29.04.2022 - 21:51Luísa Sofia Seabra wrote:
The instructions translation are wrong. In english: BEFORE THE MARKERS: The new stitch twists to the right. Use the left needle to pick up the back strand between 2 stitches from the previous round and knit in the front loop. AFTER THE MARKERS: The new stitch twists to the left. Use the left needle to pick up the front strand between 2 stitches from the previous round and knit in the back loop. and in portuguese is the wrong way what should be before the marker is after
29.04.2022 - 21:21Alcy wrote:
Hola, no entiendo el término 1 hebra entre 2 puntos. No sé cómo se tejen o qué se les hace a los puntos antes y después de la lazada que se crea. No entiendo tampoco el diagrama porque evidentemente la lazada abarca 2 puntos y no sé cómo hacerlo. Gracias!!
04.03.2022 - 00:03DROPS Design answered:
Hola Alcy, la lazada se trabaja entre 2 puntos, por eso se muestra entre 2 símbolos del diagrama (no abarca los 2 puntos). Por ejemplo, cuando se tiene un cuadrado blanco, símbolo de hebra y cuadrado blanco, significa 1 derecho, hacer 1 lazada y 1 derecho (por el lado derecho). Los puntos antes y después de la lazada pueden ser de diferentes tipos: 2 puntos juntos, derechos o reveses...
06.03.2022 - 12:41Louise wrote:
Jeg er nået til udtagning af bærestykke og skal flytte de fire mærketråde. Jeg har 306 masker i hele arbejdet, som jeg skal have, men jeg får 65 masker på hver af mit ærme, hvad har jeg gjort forkert?
07.02.2022 - 16:05DROPS Design answered:
Hej Louise, det lyder til at det stemmer, hvis du har 1 mærke i 1.maske og 1 mærke i 65. maske, så har du 63 masker imellem maskerne med mærker i :)
09.02.2022 - 11:12Anne wrote:
In de Nederlandse versie lijkt de tip voor het meerderen-2 verkeerd vertaald? Bij het meerderen VOOR de markeerdraad moet de draad van achteren opgenomen worden, en bij het meerderen NA de markeerdraad juist van voren. (Dit staat in de Noorse, Engelse en Duitse versie.)
12.10.2021 - 23:34Theresa wrote:
Hallo sind die beiden Videos zu der sattelschulter Zunahme und der Ärmel zunahme das selbe ? Ich erkenne da keinen Unterschied wie sie die Maschen aufnimmt . Ich hänge gerade an der Ärmel Zunahme und komme überhaupt nicht weiter weil ich nicht weis wie ich das aufnehmen muss im Vergleich zu zuvor bei der Schulter Zunahme.
05.09.2021 - 07:51DROPS Design answered:
Liebe Theresa, wie man die Maschen aufnimmt wird hier das selbe sein, der Unterschied wird nur wo diese Maschen zugenommen werden; beim Sattelschulter haben Sie vor 1./3. Mark. und nach 2. und 4. Mark zugenommen, jetzt nehmen Sie nach 1. und 3. und vor 2. und 4. Markierungen. Kann das Ihnen helfen? Viel Spaß beim stricken!
06.09.2021 - 07:36Ruth Leibbrandt wrote:
Is this a front button down Cardigan. Also is it waist length and can it be easily adjusted to be a little longer? I would like to knit it with your yarn but I need to have an answer to these two questions. I saw one picture where it seemed front buttoning but on another it did not seem like it. My eyes are not so good any more!! Many thanks.
12.07.2021 - 22:09DROPS Design answered:
Dear Ruth, this pattern is a sweater (ppullover. There is a cardigan version of it HERE. Since this is a top down sweater / cardigan, you can easily adjust the length by adding some rows at the bottom. Happy Stitching!
13.07.2021 - 01:52