Freshwater Pearl Top |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónaður toppur / vesti úr DROPS Cotton Light. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri á framstykkjum og v-hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 249-24 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (kantur að framan): Öll útaukning er gerð frá réttu! AUKIÐ SVONA ÚT Í HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt framan við og aftan við næstu lykkju (= 1 lykkja fleiri), prjónið 2 lykkjur slétt. AUKIÐ SVONA ÚT Í VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt framan við og aftan við næstu lykkju (= 1 lykkja fleiri). ÚTAUKNING-2 (bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (= ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið, svo að það myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚTAUKNING-3 (hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING-4 (jafnt yfir): Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA-1 (hliðar á fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum á sama hátt við hinn merkiþráðinn. HNAPPAGAT (ofan frá og niður): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar prjónaður hefur verið ca 1 cm á eftir síðustu útaukningu í kanti að framan. Fellið síðan af fyrir 3 næstu hnappagötum með ca 7-7½-7½-8-8-8 cm á milli hnappagata. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Á böndum á öxl / hlýrum er prjónað garðaprjón, gatamynstur á framstykkjum og sléttprjón á bakstykki. Byrjað er á að fitja upp lykkjur fyrir bandi á öxl / hlýra á hægra framstykki og prjónað er niður á við jafnframt því sem aukið er út hvoru megin á stykki fyrir handveg og V-hálsmáli. Þegar handvegur og V-hálsmál hefur verið prjónað til loka, er hægra stykkið sett til hliðar, á meðan bakstykkið er prjónað. Þegar bakstykkið hefur verið prjónað niður að handvegi, prjónið vinstra framstykki á sama hátt eins og hægra framstykki. Við handveg eru framstykkin og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki er prjónað niður á við fram og til baka á hringprjóna. Í lokin er bönd á öxlum / hlýrar fest við bakstykkið. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 7-7-9-9-11-11 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Cotton Light og prjónið GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan. Þegar band á öxl / hlýi mælist 7-7-7-7-7-8 cm, setjið 1 merki í umferð, þetta merki merkir öxl. Prjónið síðan í garðaprjóni þar til band á öxl / hlýri mælist 11-11-11-11-11-13 cm, endið eftir umferð frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. prjónið A.1 og aukið út í hvorri hlið fyrir handveg og v-hálsmáli eins og útskýrt er í mynsturteikningu (umferð 1 = rétta). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru 29-29-31-31-33-33 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.2A, prjónið A.2B alls 2 sinnum, prjónið A.2C. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar 4 umferðir eru eftir í A.2 (sjá sviga fyrir rétta stærð) og næsta umferð er prjónuð frá réttu, aukið út 1 lykkju fyrir kant að framan í lok umferðar – lesið ÚTAUKNING-1. Endurtakið útaukningu í næstu umferð frá réttu (þessar 2 lykkjur gera að kantur í hálsmáli nær yfir að kanti að framan). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, eru 47-49-53-57-61-65 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 18-19-20-21-22-24 cm frá merki á bandi á öxl / hlýra. Klippið þráðinn, leggið stykkið til hliðar og prjónið bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Fitjið upp 52-54-60-64-70-74 lykkjur á hringprjón 3 og prjónið 3 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 3 lykkjur í garðaprjóni, aukið út 1 lykkju fyrir handveg – lesið ÚTAUKNING-2, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju fyrir handveg, prjónið 3 lykkjur í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (= ranga): 3 lykkjur í garðaprjóni, prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður brugðið, svo það myndist gat) þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur í garðaprjóni. Endurtakið 1. og 2. umferð þar til aukið hefur verið út alls 16-17-18-20-21-23 sinnum í hvorri hlið = 84-88-96-104-112-120 lykkjur og síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Klippið þráðinn, leggið stykkið til hliðar og prjónið vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 7-7-9-9-11-11 lykkjur á hringprjón 3 og prjónið garðaprjón. Þegar band á öxl / hlýi mælist 7-7-7-7-7-8 cm, setjið 1 merki í umferð, þetta merki merkir öxl. Prjónið síðan í garðaprjóni þar til band á öxl / hlýri mælist 11-11-11-11-11-13 cm, endið eftir umferð frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. prjónið A.1 og aukið út í hvorri hlið fyrir v-hálsmáli og handveg eins og útskýrt er í mynsturteikningu (umferð 1 = rétta). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru 29-29-31-31-33-33 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.2A, prjónið A.2B alls 2 sinnum, prjónið A.2C. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar 4 umferðir eru eftir í A.2 og næsta umferð er prjónuð frá réttu, aukið út 1 lykkju fyrir kant að framan í byrjun umferðar – lesið ÚTAUKNING-1. Endurtakið útaukningu í næstu umferð frá réttu (þessar 2 lykkjur gera að kantur í hálsmáli nær yfir að kanti að framan). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, eru 47-49-53-57-61-65 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 18-19-20-21-22-24 cm frá merki á bandi á öxl / hlýra. Ekki klippa þráðinn, nú eru stykkin sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Byrjið frá réttu og prjónið stykkin í eftirfarandi röð þannig: Vinstra framstykki, bakstykki, hægra framstykki: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni (= kantur að framan), haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er í A.2B þar til eftir eru 3 lykkjur á vinstra framstykki, prjónið 3 lykkjur í garðaprjóni, fitjið upp 6-8-8-10-14-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið), prjónið 3 lykkjur í garðaprjóni, 78-82-90-98-106-114 lykkjur slétt, 3 lykkjur í garðaprjóni frá bakstykki, fitjið upp 6-8-8-10-14-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið), prjónið 3 lykkjur í garðaprjóni, haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er í A.2B þar til 5 lykkjur eru eftir á hægra framstykki, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni (= kantur að framan) = 190-202-218-238-262-286 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 6-8-8-10-14-18 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið. Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar fækka á lykkjum og auka út í hliðum. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, haldið áfram með A.2 þar til eftir eru 6-7-7-8-10-12 lykkjur á undan fyrri merkiþræði, prjónið 12-14-14-16-20-24 lykkjur í garðaprjóni (merkiþráðurinn situr mitt í þessum lykkjum), prjónið 78-82-90-98-106-114 lykkjur brugðið, 12-14-14-16-20-24 lykkjur í garðaprjóni (merkiþráðurinn situr mitt í þessum lykkjum), haldið áfram með A.2 þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, haldið áfram með A.2 þar til eftir eru 6-7-7-8-10-12 lykkjur á undan fyrri merkiþræði, prjónið 12-14-14-16-20-24 lykkjur í garðaprjóni, prjónið 78-82-90-98-106-114 lykkjur slétt, 12-14-14-16-20-24 lykkjur í garðaprjóni, haldið áfram með A.2 þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni – munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, haldið áfram með A.2 þar til eftir eru 6-7-7-8-10-12 lykkjur á undan fyrri merkiþræði, prjónið 12-14-14-16-20-24 lykkjur í garðaprjóni (merkiþráðurinn situr mitt í þessum lykkjum), prjónið 78-82-90-98-106-114 lykkjur brugðið, 12-14-14-16-20-24 lykkjur í garðaprjóni (merkiþráðurinn situr mitt í þessum lykkjum), haldið áfram með A.2 þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni. Prjónið síðan fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan, A.2 á framstykki og sléttprjón á bakstykki. Prjónið A.2 eins langt og hægt er að merkiþræði í hvorri hlið – lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í heila mynstureiningu við merkiþráðinn, eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-8-8 cm frá þar sem stykkin voru sett saman, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 13-13-14-14-15-15 cm frá þar sem stykkin voru sett saman = 182-194-210-230-254-278 lykkjur. Þegar stykkið mælist 19-19-20-21-22-22 cm frá þar sem stykkin voru sett saman, aukið út 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið ÚTAUKNING-3 (= 4 lykkjur fleiri) = 186-198-214-234-258-282 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 24-25-26-26-27-27 cm frá þar sem stykkin voru sett saman – stillið af að prjónaðar séu nokkrar umferðir í sléttprjóni eftir umferð með gatamynstri á framstykkjum. Í næstu umferð (= rétta) byrjar stroff jafnframt því sem aukið er út um 17-19-19-21-23-27 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) – lesið ÚTAUKNING-4 = 203-217-233-255-281-309 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningu) þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 2-2-2-3-3-3 cm, fellið af. Stykkið mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá merki á bandi á öxl / hlýra. FRÁGANGUR: Saumið bönd á öxl / hlýra við bakstykki – byrjið sauminn yst í hvorri hlið og saumið lykkju á móti lykkju. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (8)
Agnieszka wrote:
Gdy zostaje do wykonania 4 rzędy schematu A.2 (patrz ramka odpowiednia dla rozmiaru) - nie widzę schematu A.2 :(
14.05.2024 - 15:50DROPS Design answered:
Witaj Agnieszko, chodzi o schematy A.2a i A.2c. Pozdrawiamy!
14.05.2024 - 16:28Michelle wrote:
Bei Zunahmetipp 1: Die Zunahme soll passieren, wenn noch 3 Maschen auf der Nadel sind, aber die „3. Masche“ ist ja sozusagen der Umschlag. Also wird die Zunahme vor oder nach dem Umschlag gearbeitet?
07.05.2024 - 12:03DROPS Design answered:
Liebe Michelle, dann stricken Sie den Umschlag wie im Diagram gezeigt, dh stricken Sie die 3. Masche vor Ende der Reihe zwei Mal, dann Umschlag, und 2 Maschen rechts / 2 M rechts, 1 Umschlag, 2 Mal die 3. Masche bei dem anderen Vorderteil. Viel Spaß beim Stricken!
07.05.2024 - 13:32Michelle wrote:
Beim rechten Vorderteil steht: "Weiter glatt rechts stricken, bis der Schulterträger eine Länge von (...). Dem Bild und dem linken Vorderteil zu entnehmen, sollte doch weiter in Krausrippen gestrickt werden oder?
22.04.2024 - 12:08DROPS Design answered:
Liebe Michelle, ja man soll weiter in krausrippen stricken, danke für den Hinweis, eine Korrektur erfolgt. Viel Spaß beim Stricken!
22.04.2024 - 13:09Eveli wrote:
Summer in the countryside
21.01.2024 - 14:22Cecilia wrote:
Mayfield
19.01.2024 - 11:41Kelly wrote:
Night Jasmine
18.01.2024 - 21:52Caren Veraart wrote:
Daisy
18.01.2024 - 18:13Signe wrote:
Daisy day top
18.01.2024 - 15:51